Skírnir - 01.01.1898, Page 59
Bretland.
69
að eins bera ábyrgð gagnvart brezku stjðrninni, og er þannig fyrirkomu-
lagið svo sjálfu sér ðsamkvæmt, að það getur ekki svo búið staðið til
frambúðar. Annaðhvort verður að svifta íra þessu sjálfræði aftur eða
rýmka það. En hvort heldur verði, það er nú að öllu leyti undir írum
komið sjálfum, eða því, hvernig nefndirnar beita valdi sínu. Fari þær
vel og sanngjarnlega með það, boli ekki minni hlutann út alveg, heldur
lofi honum að hafa hæfilegan minni hlut fulltrúa í nefndunum, þá sýna þeir
með því, að þeir eru hæfir til að stjðrna sjálfum sér, og þá getur engin
stjórn til lengdar neitað þeim um fyllri heimastjórn. Þetta játa nú enda
æfustu mðtstöðumenn þeirra. En misbeiti þeir þessu valdi sínu til að
misbjóða minni hlutanum, þá er hætt við1 að þeir spilli svo málstað sín-
um, að fylgismönnum hans í Englandi og Skotlandi fækki hraparlega.
Sem betur fer eru talin talsverð líkindi til, að írar muni ætla að láta sér
fara þetta vel úr hendi; en af því mun Skírnir væntanlega geta sagt
nokkuð ger næsta ár.
— Ið mikla verkfall járnsmiða í Suður-Wales lyktaði í Janúar svo,
að verkmenn urða að gefa upp baráttuna og ganga að kjörum verkveit-
enda, sem þeir höfðu hafnað í fyrstu. Árangurinn allur verkmönnum til
handa var sá, að þeir höfðu eytt £ 760,000 (meira en lfi'/a milíón króna)
til viðurværis sér af styrktarfé, meðaD á verkfallinu stóð, og farið á mis
við £ 2,000,000 (36,000,000 kr.) í launum á sama tíma. Hve miklu
verksmiðjueigendur hafa tapað, veit enginn; en í 7 mánuði höfðu smiðjur
þeirra verið iðjulausar; mikið af mörkuðum sínum mistu þeir á meðan í
hendur Bandaríkjamanna og Þjóðverja, og ná þeir aldrei aftur mörgum
af skiftavinum þeím, sem þeir mistu þannig, og verður það framtíðartjón
bæði fyrir enska smiðjueigendur og verkmenn.
Kolanemar í Suður-Wales lögðn og niður verk, og lauk því verkfalli
eftir 20 vikur í Ágúst á þann hátt, að verkmenn urðu undir. Tap þeirra
við launamissi einn þennan tíma var metið 46 milíónir króna; en alls er
tjónið af því verkfalli metið 108,000,000 kr.
Samtök verkamanna hafa því borið illan árangur á Bretlandi þetta ár,
bæði fyrír verkmenn sjálfa og alla þjóðina. Sýnir það, að þótt mikið
afl sé í samtökum fjöldans, þá er það afl því að eíns til gagns, að því sé
beitt með skynsamlegrí fyrirhyggju, svo að í „upphali sé endirinn skoðaður".
Áftur sýndi Bretand enn í ár annað dæmi þess, hve miklu góðu sam-
tök smælingjanna fá til vegar komið, þegar þeim er skynsamlega og hag-
sýnilega beitt. Ég á hér við samorkufélögin ensku. Samorku-félögin eru