Skírnir - 01.01.1898, Page 60
60
Bretland.
að miklu leyti kaopfélagsskapur, en að nokkru leyti verkfélagsskapur (í iðnaði).
Það or eftir fyrirmynd inna ensku samorkufélaga að kaupfélegs-eamtöki*
bér á landi hafa myndaet. Á aðalfundi samorkufélaga i Lundúnum hélt, Grey
lávarður ræðu og skýrði þar frá, að félög þessi borguðu nú árlcga úti hluta-ágéða
um 108 milíönir króna, og mundi þess ekki langt að biða að ársupphæð þessi yrði
helmingi meiri en nú. í þessu sambandi er vel til fallið að geta um bók
eina, sem út kom á árinu um þetta cfni. Hún er eftir Bandaríkjamann,
H. D. Lloyd að nafni, sem hefir ferðast um Bretland og írland til að
kynna sér samorkufélögin þar; lýsir hún þeim einkar-vel og fróðlega; hún
kom út hjá Harper & Bros. (N. Y.) og kostar 5 kr. Titillinner: Labour
Co-partnership. Lýsir hann þar því, hversu byrjunin var kaupfélagsskap-
ur (verzlun — Bkifti framleiðslunnar); þar næst kom verksmiðju-félags-
skapur (iðnaðar-framleiðsla); síðan húsbygginga-félagsskapur og síðast bú-
félagsskapur (framleiðsla í akuryrkju og kvikfjárrækt). Detta telur hann
eðlilegan gang hreyfingarinnar. Bókin er sögð mætavel rituð, skemtileg
og full af fróðleik.
— Á norður-landamærum Indlands áttu Bretar í ófriði enn þetta ár
alt við þarlenda þjóðflokka. Veitir þeim þar örðugt við að eiga, og það
því fremur sem allar óeirðirnar eru sprotnar af brigðmælgi stjórnarinnar,
sem hafði heitið að hafa ekki setulið i Cithral, en brá því heiti.
Nú hafa orðið yfirböfðingja-skifti á Indlandi, og er nú Ourzon lávarð-
ur orðinn þar varakonungur.*
— í Canada eru og landstjóra-skifti orðin; er Aberdeen lávarður
heim farinn þaðan við almennar vinsældir og bezta orðstir, en jarlinn af
Mintó kominn í hans stað. í Canada hefir annars orðið mikil breyting á
hlutfalli fiokkanna, Ontario er máttarstoð „frjálslynda" flokksins; á fylk-
isþingi þar hafði sá flokkur fyrir vorkosningarnar 69 atkvæða meiri hluta,
en að þeim afstöðnum að eins 8 umfram raótstöðuflokkinn.
— Það var getið í síðasta Skírni um tilraunir Áatralinga til að
koma ölium brezku lýðlendunum í þeirri álfu til að ganga í bandalag og
mynda eitt samveldi, líkt og Canada-veldi. Mönnum kom saman um að
reyna á ný að fá samþykt frumvarpið um bandalag nýlendnanna. Yar það
*) Ensk blöö kalla lafði Curzon vara-drotning Indlands ; hún er annars ltaup-
mannsdóttir frá Chicago, alsystir Jos. Leiter’s, sem mest fé grœddi í fyrra á korn-
kaupum, en blaö eitt hór á landi vildi endilega fullyrða aö væri gjaldþrota. Hann
er nú í Englandi (Maí ’99) og er að stofna þar hlutafélag, sem á að hafa 180 milíóniv
hróna að stofnfé, og er hann einn aðal-hluthafinn. Þessa er því getið hér, að blaðið,
sem óg vék á, notaði þetta færi til að diötta óáreiðanleik að „höfundiSkírnisfrétta*1.