Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1905, Page 9

Skírnir - 01.01.1905, Page 9
Þurkur. £ Eg ætla ekki að fara lengra út í þá sálma. Eg ætla ekki að segja neina ástarsögu. Að minsta kosti ekki í venjulegum skilningi. Þurkurinn hélzt. Við skiftumst á, búðarmennirnir. að vera úti öllum stundum og »teyga himinsins sólfagran. brunn«. Þriðja þurkdaginn síðdegis vatt eg mér inn til læknisins í gönguferð minni. Eg var hálfþreyttur af göng- unni og iðjuleysinu og hugði gott til að setjast í dúnmjúkan legubekkinn og hlusta á lækninn tala. »Vindil?« sagði læknirinn. »Já, vindil«, sagði eg. »1 dag hefi eg ekki reykt nema sex vindla«. »Bjór eða whisky og vatn?« sagði læknirinn. »Ofurlitla ögn af whisky«, sagði eg. Eg kveikti í vindlinum, bar eldendann upp að vitun- um og lét reykjareiminn leggja upp í nefið, stakk vindlin- um upp í mig, saug hann nokkuð fast og lét reykinn fara út um nefið. Svo andvarpaði eg af ánægju. Vindillinn var ágætur. Svo fórum við að drekka whiskyblönduna í hægðuni okkar. Eg hallaði mér upp að hausnum á legubekknung teygði úr fótunum, fann að mér leið ágætlega og sendi hugann allra snöggvast yfir um fjörðinn, þangað sem hann vildi helzt vera. Læknirinn lék á alls oddi. Hann talaði um Japana og Rússa, nýjustu geisla, sem fundist hefðu, og nýjustu kenriingar um það, hvernig mönnum finnist að deyja. Mér lætur betur en nokkuð annað að hlusta á aðra menn. Mér dettur aldrei neitt i hug sjálfum, sem mér finst þess vert, að það sé geft að umræðuefni. En mér liggur við að segja, að eg kunni að hlusta af hreinni snild. Eg kann að þegja með athyglisvip. Og svo get eg við og við skotið inn örstuttum athugasemdum, ekki til þess að koma að neinni skoðun eða neinni þekking frá sjálfum mér — eg hefi ekkert aflögum af því tægi - heldur eingöngu til að teygja þann, sem er að tala, inn á

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.