Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 16

Skírnir - 01.01.1905, Side 16
Heimavistarskólar. 1« sýnn. Stjórn skólans og umsjón með börnunum yrði erfið- ari og vandasamari, sýkingarhætta meiri, ef upp kæmi næmur sjúkdómur, auk þess sem aðsókn að ukólanum og samband heimilanna við hann yrði erflðara og áhugi t'or- eldranna því ef til vill daufari, ef hann væri fyrir mjög stórt svæði. Sökum þess hve skólar þessir verða dýrir, er ekki tiltök að foreldrar geti alment haldið öll börn sín 10—14 ára að aldri allan veturinn á slíkum skóla. Reglan yrði því sú, að á hverjum skóla væri í senn aðeins helm- ingur þeirra barna sem aðsókn ættu að skólanum. Yrði þá hvor deild 3—4 mánuði. Víðast mundi hentugast, að eldri deildin, 12—14 ára, væri fyrri part vetrar, því þá mega þau börnin sem helzt eru til gagns á heimilunum helzt vera að lieiman, áður en vertíð byrjar osfrv. Yngri börnin, 10—12 ára, yrðu þá á skólanum seinni part vetrar, og ættu þau að'geta verrð að heiman all langt fvam á vor .Sumstaðar gætu skólar byrjað 1. okt. og staðið til maí loka, annarstaðar muridi erfitt að byrja fyrr en líður á október. I því efni yrði að fara nokkuð eftir hag hvers skólasvæðis. Eg held því að réttast væri að miða stærð skólanna við tölu þeirra barna sem einn góður kennari gæti haft til kenslu og umsjónar í senn, og séu 2 ársdeildir samtímis, á skólanum. Það hefir sína kosti, að einn maður beri alla ábyrgð á skólastarfinu og megi sjálfum sér þakka, eða um kenna, hvernig það gengur. Með því móti verður og mest eining og samræmi í skólalífinu og samlíf kennara og nemenda nánast. En varla þarf að taka það fram, að ekki má trúa öðrum fyrir slíkum skóla en þeim sem reyndur er sem góður kennari og samvizkusamur maður. Sé nú ráð fyrir þessu gjört, hygg eg að vel megi vera á skól- anum í senn allt að 40 börn. Ef til vill þykir einhverjum þetta há tala fyrir einn mann að kenna, og að kenslan geti ekki orðið góð með þessu lagi. En sumstaðar erlendis verða kennarar að hafa alt að því helmingi fleiri, og á stöku stað meir en helmingi fleiri, börn til kenslu sam- tímis í sömu kenslu-stofunni, og það 4—7 ársdeildir, en

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.