Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 18

Skírnir - 01.01.1905, Side 18
18 Heimavistarskólar. ættu því að vinna mikið af þvi starfi sem á skólanum þarf að 'vinna, hirða sig sjáit', ræsta skólann, þvo t'öt sín og bæta og- læra það sem til þess þarf, hjálpa til við mat- seldina, bera á borð og af því, þvo upp mataráhöld og ílát osfrv. Finst mér að piltar jafnt sem stúlkur tettu að vinna að öllu þessu. Flestum karlmönnum getur komið vel að kunna að bæta sokk eða skó, og engin óþarfl væri að kunna að smirja brauðsneið eða hreinsa disk og hníf. Vel kæmi mörgum sjómanni að kunna að þvo t'ötin sín. Ætlast eg til að börnunum sé skift í tlokka, er hver heflr sitt starf' á hendi um ákveðinn thna, og sé svo skift um verk. Auk þess sem börnin á þennan hátt lærðu reglu- bundna vinnu, sem vœri þeim lioll og hressandi og hinn bezti undirbúningur undir lífið, er þetta nauðsvnlegt, sökum þess að á þennan hátt sparast mjög mikill vinnukostnaður við skólann. Eg ætlast til að auk barnanna og kennarans, sem het'ði vfirsumjón með þessu, þyrfti eina duglega ráðs- konu og- eina röska vinnukonu, og af því slíkur skóli yrði auðvitað ekki settur á eyðistað, heldur á eitthvert stórbýlið, þá fengi skólimi aðstoð á bænum þegar á þyrfti að halda, t. d. þegar þveginn væri stórþvottur. Þá aðstoð mundi meir þurfa að nota þann thnann sem yngri börnin væru á skólanum. Þetta fyrirkomulag halda revndar og hvgnar húsmæður, að megi vel takast. Sumstaður mundi, auk þeirrar verklegu fræðslu sem nú var talin, mega kenna drengjum (eða ef til vill stúlk- unum líka) einfalt trésiníði (slöjd) og gæti það farið fram í sömu kenslustofu og aðrar greinir, ef skólapúltin væru svo úr garði gjörð, að þau gætu jafnframt verið hefllbekkir. Slík skólapúlt sá eg notuð í Noregi. Væri nú á sólarhring hverjum varið 4—5 stundum til bóklegrar fræðslu, 1 stund til handavinnukenslu, 2 stundmn til undirbúnings, 9 stundum til svefns, verða auk frístunda milli kenslutíma 7—8 stundir afgangs, er gengju til hvildar og hressingar og til þess að inna af hendi þau líkamleg störf' sem börnunum eru ætluð á skólanum.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.