Skírnir - 01.01.1905, Síða 20
20
Hei ma vistarskó! ar.
við þetta skólahús., Til þess að setja eitthvað set eg 600
kr. til eldsneytis og ljósmetis, og ætlast eg til að kennar-
inn hafi hvortveggja ókeypis.
Þá kemur kostnaður við matföng; um hann veit eg
þetta: I matarfélagi Möðruvellinga um 9 ár, frá 1892—’9;>
til 1901—’02 hafa matföng handa manni á dag kostað að
meðaltali 37,8 aura; á Heydalsá tvö síðustu árin: 31,9
eyrir; á Hólaskóla 1903—’04: 45 aurar; á holdsveikra-
spítalanum 1902: 36 aurar, 1903: 38,4; í hegningarhúsinu
1903: 39,9 aurar. A ferðum mínum um landið hef eg á
40—50 stöðum fengið að vita hvað tekið er með börnum,
þegar þeim er komið fyrir á bæjum til kenslu; er það
30—60 aurar á dag: 40—50 aurar er almennast, 35 aurar
ekki óalment. Sé ná þessa gætt og jafnframt iiins, að hér
er að ræða um fæði barna 10—14 ára, en ekki fullorð-
inna manna, þá virðist all-hátt í lagt að gera kostnað
við matföng fyrir hvert barn á dag 35 aura. Fæðiskost-
naður livers barns í 4 mánuði eða 120 daga verðurþá42
kr. eða kr. 10,50 um mánuðinn. En hér verður þess að
gæta, að við skólann verður telagsbú þannig, að aðstand-
endur barnanna leggja matföng inn í búið á haustin og
fá þannig sölu á afurðum bús síns, sem mörgum kemur
betur en að greiða peninga. Eg ætlast til að ráðskona
og vinnukona hafl ókeypis fæði á skólanum. Matfanga-
reikningurinn verður því: fvrir 42 i 240 daga kr. 3528,00.
Þá koma launin.
Kennarinn verður, eins og þegar er sagt, að vera
maður er trúandi sé fyrir svo ábyrgðarmikilli stofnun,
og er slíkum manni varla boðlegt lægra kaup fyrir 8
mánaða starf en 800 kr. auk ókeypis húsnæðis, eldsneytis
og ljósmetis. Þurfa kjör hans að vera svo, að hann geti
séð fyrir fjölskyldu á sómasamlegan hátt.
Ráðskonan þarf að vera vel að sér og dugleg, hún
verður að kunna vel til matreizlu og hannyrða og kunna
að stjórna. Má hún því ekki hafa öllu minna kaup en
200 kr. auk fæðis og liúsnæðis. Vinnukonan þarf að vera
•ötul og þrifin, og ætla eg að hún fengist fyrir 80 kr. kaup,