Skírnir - 01.01.1905, Síða 25
TJm heimavistarskólahús handa hörnum.
25
þýðu manna nákvæmar leiðbeiningar um tilhögun og gerð
á skólahúsum, smáum og stórum, og hefi í því skyni kynt
mér uppdrætti og lýsingar á skólahúsum eins og þau
tíðkast í öðrum löndum.
Nú hefir ritstjóri Skírnis farið þess á leit við mig, að
eg í svipinn segði í stuttu máli álit mitt á því, hvernig
heimavistarskóli í sveit handa 40 börnum eigi að vera
hýstur, til þess að hann fullnægi nútíðarkröfum heilsu-
fræðinnar. Eg liefi ekki viljað skorast undan þessu, en
vegna rúmleysis í ritinu verður tilsögn mín að þessu sinni
stutt og ónóg — aðeins til þess að vekja athygli almenn-
ings á málefninu.
Skólastœðið. Ofnar verða að vera í öllum skólahúsum,
en kol eru of dýr til sveita, tað og hrís
líka, m ó r einasta eldsneyti, sem um getur verið að ræða,
enda eru nú til ofnar af alls konar gerð, lika skólastofu-
ofnar, sem eru ætlaðir mó. Sveitamenn verða þvi að velja
skólum sínum stað þar, sem gott mótak er í nánd, ef þess
er nokkur kostur. Gott vatnsból verður að vera í nánd
við húsið, lind eða vel gerður brunnur. Hússtæðið verður
að vera vel þurt og helzt í líðandi halla, til þess að af-
rensli geti orðið í lagi. Réttast mun vera hér á landi að
iáta glugga á skólastofum vita móti suðri.
Herbergjaþörf í skólahúsinu þarf að vera: 1) Forstofa;
í heimavistar- 2) kenslustofa handa 40 börnum; 3) tveir
skóla handa stórir svefnskálar, annar handa 18 pilt-
40 börmim. um, hinn handa 18 stúlkum; 4) tvö lítil
svefnherbergi (sjúkraherbergi), handa 2
piltum og 2 stúlkum; 5) tvö smá-herbergi handa þeim, sem
líta eftir börnunum á nóttum*); 6) borðstoía handa 40 börn-
um; 7) eldhús; 8)búr: 9)þvottahús; 10) baðhús; 11) 2
*) fiitstjúrinn ætlast, til að börnin sjálf vinni að öllum heimaverk-
um, og þurfi því ekki annað fólk en bústýru og eina stúlku; þeim ætla.
eg þessi herbergi.