Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 34

Skírnir - 01.01.1905, Side 34
34 Um heimavistarskólahús handa börnum. hafa liðið, hve afarmiklu húsakynnin ráða um heilsufar manna. Aðrir horfa beint af augum, benda á níræðar manneskjur, sem alla æfi hafa lifað í illum húsakvnnum, og halda að þau komi ekki heilsunni við. Læknirinn litur í allar áttir; hann veit — og það vita allir — að margur sjómaður verður ellidauður, en samt veldur sjórinn lífláti fjölda manns á öllum aldri; eins veit hann vel, að menn geta orðið háaldraðir í vondum hibýlum, en samt skerða þau að staðaldri heilsu manna og stytta mönnum aldur. Og börnin verða verst úti; þau þola verst híbýlaskortirm. I þröngum og dimrnum, köldum og rökum híbýlum eiga næmir sjúkdómar vísan gistingarstað þegar þeir fara um; þar ber barnaveikin oftast að dyrum, þar sezt taugaveikin oftast að, þaðan fer berklaveikin með hvern af öðrurn í gröfina. Vel hýst heimili vefða miklu vægara úti. Eg liefi margoft séð barnaheimili skifta um heilsu, er þau hafa skift urn bústað, börnin sífelt lasin í þrengslunum, sjaldan misdægurt eftir að þau voru komin í holl og rúmgóð húsakynni. Þetta er mín reynsla; þetta er reynsla allra lækna. Foreldrar verða að vera örugg um að skólavistin spilli ekki heilsu barnanna. Meðan barnaskóli Reykvík- inga var i gamla húsinu (Pósthúsinu sem nú er) urðu mörg börn að liætta við námið á hverjum vetri — þoldu ekki skólasetuna. Og heimavistarskólar eru rniklu viðsjár- verðari en heimangönguskólar, af því að börnin hafa þar meiri kyrsetur. Það bætir stórum úr brestum skólahúss, ef börnin eiga langt heim, verða að vera lengi úti á eftir kenslustundum. Þess vegna er sagt gott heisufar i mörg- urn skólakytrum i sjávarsveitum. Mentun barna er mikils verð, en meira er þó vert um heilsu þeirra. Ef heimilin eru óholl — og það eru þau víða — þeim mun meiri ástæða er til að börnin — hin unga upprennandi kynslóð — venjist í heimavistar- skólum á holt heimilislíf. Mundi ekki jafnþarft að kenna börnum að gæta heilsu sinnar eins og að kenna þeim

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.