Skírnir - 01.01.1905, Qupperneq 42
42
Niels R. Finsen.
Finsen íslenzkan arf. Hann var danskur í móðurætt, og
er mér ekki kunnugt um afburðamenn í henni.
Þegar Niels Finsen var settur til náms, gekk hann
fyrst í latínuskóla í Danmörku, en síðan í latinuskólann í
Reykjavík og útskrifaðist úr honum 1882. Læknisfræðis-
próf tók hann við háskólann í Kaupmannahöfn sumarið
1890. Hann þótti enginn afburðamaður til náms, fékk 2.
einkunn við bæði þessi próf, og íærði ekki íslenzku svo
að hann gæti talað hana lýtalaust, en greip samt jafnaðar-
lega til hennar, þegar hann talaði við skólabræður sína í
Kaupmannahöfn.
Hann vakti þegar á stúdentaárum sínum athygli á sér
fyrir það, hve einkennilega natinn hann var við ýmislegt
verklegt, t. d. líkskurð, og gjörhugull. Þegar hann hafði
lokið námi sínu, gerðist hann aðstoðarmaður hjá háskóla-
kennaranum í líffærafræði og hélt þeirri stöðu í 3 ár. Um
þetta leyti (1892) giftist hann Ingeborg Balslev, dóttur
Balslevs biskups í Rípum; margir hér á landi munu kannast
við nafn hans, því hann var höfundur að barnalærdóms-
kveri og biblíusögum, sem hefur verið þýtt á íslenzku.
A þeim árum byrjaði hann rannsóknir sínar á áhrifum
sólarljóssins á mannlegan líkama, og þessum rannsóknum
hélt hann jafnan áfram, meðan líf og heilsa entist. I fyrstu
gerði hann tilraunir með áhrif þess á heilbrigða með einkar
einföldum en viturlegum tilraunum, og þá hugkvæmdist
honum, að úr þvi heilbrigðir verða sólbrendir vegna áhrifa
sólargeislanna á skinnið, þá mundi ekki síður gæta þess-
ara skaðlegu áhrifa á sjúkdóma sem samfara eru hörunds-
veiki. Honum hugkvæmdist, að unt væri að draga mikið
úr krafti bólusóttarinnar, ef menn birgðu úti þá geisla
alla úr sólarljósinu, sem mest áhrif hafa á skinnið.
Sólarljósið er sambland af margvíslega litum geislum,
■öllum þeim, sem vér sjáum í regnboganum. En geislun-
um mismunar að fleiru en litunum einum. Rauðu geisl-
arnir eru heitastir, en fjólubláu geislarnir hafa mest áhrif
á skinnið og eru megnugastir til þess að valda efnabreyt-
ingum. Finsen réði læknunum til þess að bægja þessum