Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 44

Skírnir - 01.01.1905, Side 44
44 Niels R. Finsen. »ljósstofnun« i Kaupmannahöfn 1896 og veitti Finsen lienni forstöðu. Þar skyldi bæði stunda ljóslækningar verklega og einnig gera vísindalegar rannsóknir í öllum þeim efnum, er snerta áhrif ljóssins. I fyrstu notaði Finsen sólarljósið við lúpuslækningar sínar, en til þess að kraftur þess yrði nægur, varð hann að safna því með tvíkúptu gleri, brennigleri, en jafnframt búa svo um, að hitageislarnir kæmust ekki í gegn, því að annars mundi ljósið hafa valdið bruna. Hann breytti á ýmsan hátt til um aðferðina, eftir því sem reynsla fekkst betri, og nú er eingöngu notað rafmagnsljós í þessu skyni, og eru menn þá ekki háðir þoku og skýjum, og fer vel á því í Kaupmannahöfn, því að margir eru þar sólarlitlir dagar á ári hverju. En þótt breytt hafi verið til um smá- atriði í aðferðinni, þá er grundvallarundirstaðan jafnan hin sama: Veikin er læknuð með því að safna saman kemiskum geislum úr ljósi, og til þess að þeir komist sem bezt inn í holdið, er blóðinu þrýst á burt meðan Ijósið skin á. Þess vegna heíir ekki tekist að þessu að lækna berkla í beinum, liðamótum og lungum. Ljósið kemst ekki nægilega langt inn, af því að þar er ekki unt að þrýsta blc ðinu burt. En lúpuslækningin heíir gengið ágætlega. Meira en þús- und manna liaia fengið lækningu; fullkomna lækningu ef þeir hafa komið snemma; örin sjást óglögt eða alls ekki. og ber þessi aðferð langt af öllum eldri aðferðum. En lækningin tekur langan tima og er þess vegna ekki ódýr. Fregnin um þessa uppgötvun barst brátt út um allan heim og sjúklingar með lúpus þyrptust til Hafnar til þess að leita sér lækningar hjá Finsen, en þegar frá leið tóku aðrar þjóðir þessa aðferð upp, og í flestum mentuðum löndum hafa nú verið settar á stofn ljóslækningastofnanir, og er sagt, að dætur Kristjáns konungs 9. hafi hvervetna gengist fyrir því þar sem þær eiga heima. Báðar þessar uppgötvanir Finsens, sem nefndar hafa. verið, styðjast við þá reynslu, að sólarljósið hcfur oft skaðleg áhrif á skinn manns og á bakteríur. En það hafa

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.