Skírnir - 01.01.1905, Side 50
50
Líkbrensla.
i jörðu eða brennur, heldur leysist hann aðeins í sundur í
,þau efni, sem hann er samsettur af, en þau mynda aftur
ný efnasambönd, bæði loftkend, föst og fijótandi, sem
dreifast um loft og láð og lög og stuðla að bvggingu nýrra
líkama í náttúrunni. Þessi efnasambönd eru aðallega vatu,
kolsýra og aska, þ. e. ýms málmkend efni, sem ekki geta
brunnið eða rotnað frekar. Urslitin verða þannig hin
sömu að lokum, hvort sem líkaminn rotnar eða brennur.
Munurinn á því, hvernig þessum úrslitum er náð, er þó
ýkja mikill. Við brensluna verður sem sé þessi efna-
sundrung og myndun hinna nýju efnasambanda á svip-
stundu, þar sem þessu hins vegar fer mjög hægt fram við
rotnunina, og ótal millibils efnasambönd og eitruð rotnunar-
efni myndast áður en alt er til lykta leitt og hinar jarð-
nesku leifar hafa orðið að kolsýru, vatni og ösku. Eins
og kunnugt er, hafa fundist í jörðu leifar dýra og manna,
sem hafa lifað fyrir mörgum þúsundum ára. Svo hægfara
getur rotnunin verið. Það sem veldur rotnuninni, eru
bakteríur, bæði þær sem eru í líkamanum þegar hann
deyr, og enn freinur þær sem eru í moldinni og leggjast
á náinn. Ef líkaminn væri soðinn niður Jíkt og kjöt í
járnílátum, sem ekkert loft kemst að, gæti hann geymst
til eilít'ðar, einungis vegna þess, að bakteríurnar eyði-
leggjast við hitann. Þær eru potturinn og pannan í allri
rotn'un. Sérliver rotnandi líkami eykur vöxt þeirra og-
viðgang í veröldinni og stuðlar að úrbreiðslu þeirra; en
eins og flestum er kunnugt, eiga þær upptökin að ótal
sjúkdómum og meinsemdum manna og dýra. Þær vinna
þannig svo mikið tjón, að engin tvímæli ættu á því að
vera, að vér erum skyldir að skoða þær réttdræpar hvar
sem vér getum hönd á þeim fest. Með líkbrenslu getum
vér gjöreytt heilum hersveitum af bakteríum, sein annars
valda sorg og sársauka fjölda manna.
Þegar maður deyr af næmum sjúkdómi (þ. e. bakteriu-
sjúkdómi), er alt sótthreinsað, sem nærri honum hefir
komið at' klæðum eða húsgögnum og herbergið þar sem
hann lá, en líkið sjálft, sem morar af lit'andi bakteríumr