Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1905, Page 58

Skírnir - 01.01.1905, Page 58
58 Norsku hegningarlögin nýju. 25. júní 1869 dreymi um; svo langt eru þau nú orðin á ■eftir tímanum. Ekki var þeirn tiaustrað af þessum norsku liegningar- lögum. Nefnd manna, valin af stjórn og stórþingi, vann að þeim rúm 15 ár, en þeirra langfremstur var dr. juris Bernhard Getz, áður lögfræðisprófessor í Kristjaníu, en síðar eftir, að kviðdómar komust á, forstjóri ákæruvaldsins í öllum Noregi (Rigsadvokat); sérfræðingur i hegningar- rétti og kunnur meðal lögfræðinga víða um lönd af ritum sínum í þeirri grein. Má kalla hann föður laganna. Lögin eru alls í 435 greiuum og skiftast í 3 aðalkafla með fvrirsögn: almenn ákvæði, glæpir og yflrsjónir; þar við bætist bálkur um lögleiðslu laganna, alls 32 greinar, og eru þar á meðal ýms ákvæði, sem snerta eigi beint lögleiðslu laganna, svo sem um skaðabætur. Lögin grípa yfii' töluvert meira et'ni en hegningarlög vor, sérstaklega 3. kaflinn um yfirsjónir; þar eru ákvæði um öll almenn lögreglubrot. Lögin ná þannig yflr allan hegningarréttinn, :sem hér flnst í einu lagi, í einum lagabálki. Annars skyldi enginn ætla, að lögin næðu yflr nákvæmlega hina sömu g'læpi, sem hegningarlög vor. Það var margt talið glæpur fyrir 30—40 árum, þegar hegningarlög vor voru samin, sem réttarmeðvitund síðustu tíma telur engan glæp og á hinn bóginn má þar flnna ýmislegt athæfl í glæpa- eða yfirsjónaflokki, sem hegningarlög vor ekki einu sinni nefna. .Svona breytast tímarnir og réttarmeðvitundin hjá þjóð- félögunum. Fyrsti kafli laganna heflr að fyrirsögn: »Almennar ákvarðanir« og eru þar tekin fram hin almennu skilyrði fyrir hegningu glaípa og yflrsjóna; eru þau að miklu leyti hin sömu og í hegningarlögum vorum. Þó eru ýmsar mikilvægar breytingar: Lögaldur sakamanna er 14 ára nldur (10 ár hjá oss). Um fyrningu saka eru sett ítarleg ákvæði; allar sakir geta fyrnst, þannig að að liðnutn fvrn- ingartímanum má eigi beita refsingu, þótt afbrotið komist upp. Fyrningarfresturinn er misjafnlega langur alt eftir stterð afbrotsins, frá 1—30 ára. Jafnvel hegning fyrir

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.