Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 62

Skírnir - 01.01.1905, Side 62
Willard Fiske. [Af prentuðum ritum hefi ég þetta eitt á að byggja: „Sunnanfara“ I, 9. ug 34. bls. (greinar eftir Olaf Davíðsson); nafnlausa grein, sem lítið er á að græða, í „Þjóðvinafélags-almanakinu“ fyrir 1898; grein eftir „B. M.“ í „Þjóðólfi“ 5. Ágúst 1894, og útdrátt úr erfðaskrá W. F. í „Reykjavik“ V. árg. 204, 209. 1)1».]. Sumarið 187.3 varð eg' að fara úr landi til Banda- ríkjanna, og var eg veturinn 1873—74 við verzlun í þorp- inu North Cape i Wisconsin. Þann vetur reit ég af og til greinar i norskt dagblað »Skandinaven« í Chieago, flestar um Island, og stóð nafn mitt og heimili undir. Skömmu eftir að fyrstu greinarnar komu út, fekk ég einn dag bréf frá manni, sem eg hafði aldrei heyrt nefndan fyrri. Það var háskólakennari og háskóla-bókavörður við Cornell- -háskóla í borginni Ithaca í New York ríki og hét Willard Fiske. Kvaðst hann iiafa vitað, að ég var í Ameríku, en ekki hvar ég væri niður kominn, fyrri en hann hefði séð nafn mitt í »Skandinaven«, er haldinn væri á lestrarstofu háskólans; en æskuvinur sinn Gísli Brynjúlfson, háskóla- kennari í Kaupmannahöfn, hefði minst á mig í bréfl til sín og beðið sig að vera mér innanhandar, ef svo bæri undir að hann skyldi verða var við mig. Þetta varð upphaf kynningar okkar, og nokkru síðar liafði hann nefnt mig á nafn í grein um Island í »The Nation«; en það leiddi aftur til þess, að vinur hans einn fékk hjá lionum utanáskrift mína og reit mér til að vekja athygli mína á Alaska.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.