Skírnir - 01.01.1905, Blaðsíða 67
Willard Fiske.
67
eftir fig látinn. Bókfræðirit hnns um Petrnrea munu ekki
eiga sinn líka.
Þá er þess getandi, að Fiske var með beztu skák-
mönnum í heimi og allra manna bókfróðastur um skák-
list. Hann hafði safnað yfir 1200 bindum um skák og
gefið landsbókasafninu hér, allar bækurnar í prýðilegasta
bandi. »B. M.« segir í »Þjóðólfi«, að »ekkert bókasafn á
Norðurlöndum eigi nú eins gott sal'n um skáklistina, eins
og Landsbókasafnið«. Það er mála sannast. En á nokk-
urt bókasafn í heimi jafn-gott safn i þeirri grein? Ég þori
nærri að fullyrða, að ekkert, bókasafn, sem er almennings-
eign, á þess líka. Hitt er ekki fyrir takandi, þótt mér sé
ókunnugt um það, að eitthvert auðugt skákfélag kunni að
eiga jafnstórt safn. En efasamt mun það vera, að svo sé.
Og vafalaust er hér nú margt kver í skákfræði, sem ekki
er annarstaðar til. Að gizka á verð þessa safns, mun
torvelt, því að margar bækur eru þar metfé, en safnið í
heild sinni væri ekki of metið á 20,000 krónur.
W. F. gaf hverju heimili í Grimsey skáktafi. Hann
gaf taflfélagi Reykjavíkur, er stofnað var að hans tilsrilli,
skáktöfl og skákborð; hann sendi og hingað skákborð til
að selja til hagsmuna fyrir félagið. Hann gaf út íslenzkar
skákbækur og skáktímarit á sinn kostnað og gaf taflfélag-
inu í Reykjavík alt upplagið. Eins gaf hann gjafir tafi-
félagi Islendinga í Winnipeg og ýmsum einstökum Islend-
ingum gaf hann töfi.
A undan þjóðhátíðinni 1874 gekkst hann fvrir að safna
miklum bókagjöfum í Ameríku til Landsbókasafnsins hér
(sem þá hét »stiftisbókasafn« upp á dönsku!).
Hann heimsótti ísland 1879 og ferðaðist hér umhverfis
landið. Þá stofnaði hann bókasafnið »íþaka« fyrir læri-
sveina latínuskólans og gaf því höfðinglegar gjafir jafnan
síðan.
W. F. hafði áhuga eigi að eins á bókmentum Islands,
heldur á öllum þess hag og velfarnan. »Brúun elfa og
akvegir um landið —, það eru íslands brýnustu þarfir«,
sagði hann við mig, er hann heimsótti mig á Eskifirði 1879,
5*