Skírnir - 01.01.1905, Page 70
70
Wi.lard Fis'<e.
voriö komu þau aftur til Ítalíu; þar dó hún um vorið eða
sumarið i Florence.
Ettir lát konu sinnar sagði Fiske af sér embætti og
settist að i Florence. Þar keypti hann sér síðar veglegt
hús ( Villa Landor) og þar lifði hann til dauðadags, en ferð-
aðist oft á sumrum norður um Evrópu og til Ameriku.
VLLLA LANDOfi.
Erfðaskrá Cornells þekki ég ekki, en hún mun hafa
verið á þá leið, að ef Jennie M’Graw dæi barnlaus, þá
félli það sem hún léti eftir sig til Cornell-háskóla. En
hún mun hafa gefið man-ni sínum allan auð sinn
(Doll. 3 000 000= 11 250 000 króna) í lifanda lífi, svo að
hún átti sjálf ekkert, er lmn dó. En hvernig sem það
hefir verið, þá er hitt víst, að Cornell-háskóli fór í mál
við próf. Fiske út af arfinum og stóð það lengi. Loks féll
hæstarréttardómur Bandaríkjanna sumarið eða haustið 18110,
og vann próf'. Fiske málið að fulln. »The Nation« gat um
dóminn þá og gat þess jafnframt, að Fiske hefði látið sig
vita, að hann mundi arfleiða háskólann að mestöllum
eignum sínum.