Skírnir - 01.01.1905, Blaðsíða 75
Útlendar fréttir.
7t>
stríðið urn hríð, en seint í ágúst fór aftur að konia hreifing á her-
sveitirnar.
24. ágúst hófst stórorusta skamt fyrir sunnan Liaó-yang og
stóð yfir marga daga. Hvorir um sig höfðu þat' á 3. hundr. þús.
vígra manna. Mannfall var mjög mikið af hvorumtveggju. Þeirri
orustu lauk svo, að Rússar hrukku norðurfyrir Liaó-yang. Það var
í byrjun seftember. Bjóst uú Kúrópatkiu um með Rússaher í
Múkden, en Kúroki þar skamt fyrir sunuan með her Japana. Oyama
marskálkur, yfirhersböfðingi Japana, settist í Líaó-yang. Jók nú Kúró-
patkin lið sitt með nýjum hersveitum, og 10. október róðst hann á
Japani fyrir sunnan Múkden. Sú orusta er kend við Sja-hó, stóð í
11 daga og var ntjög mannskæð. Lauk henni svo, að hvorugir
unnu á og héldu báðir vígstöðvum sínum. Sú breyting var nú orð-
in á herstjórn Rússa, að Alexeieff varakonungur, sem frá byrjun
ófriðarins hafði verið talinn yfitforingi Rússahers bæði á sjó og landi,
þótt aldrei kæmi hann nærri nokkurri orustu, hann hafði nú sagt
af sér forustu hersins, og vir Kúrópatkin gerður að yfirforiugja
landhersins 23. október.
Svo segir í síðasta Skírni, að Japötium hafi tekist að loka
mynninu á Port Arthúr og byrgja flota Rússa þar inui. þetta
hefir ekki reynst rétt; hat'narmynnið hefir altaf verið fært stærstu
herskipum. Nú lá floti Rússa þar inni og var gert við skip þau
sem áður höfðu laskast í orustunum. 10. ágúst héldu Rússar flot-
anum út úr höfninni. Voru það Ö vígskip, 4 beitiskip og 8 tund-
urbátar. Togó var þar útifyrir tneð flota Japana, 4 vígskip, 11
beitiskip og 30 tundurbáta. Rússar hóldu flotanum suður og aust-
ur. En er þeir voru komnir alllangt til hafs, réð Togó á þá.
Þar stóð orusta, sem tulin er mesta sjóorusta á öllum tímum.
Rússar biðu ósigur og floti þeirra tvístraðist; sum skipin fórust,
en öttnur komust undan meira og minna skentd; ntörg hóldu inn í
Port Arthúr aftitr, en önniir leitnðu hafna í • Kína. ‘ 16. ágúst
hélt flotinn enn út úr Port Arthúr, og vildi fl/ja suður og austur í
höf, ett Japanir urðu varir við og tvístrnðu honum enn, svo hann
varð að suúa við aftur.
16. október lagði Eystrasalts-floti Rússa á stað austur, en það
er bæði löng leið og erfið, er fara verðttr suðttr fyrir Afríktt, ettda
hefir ferðin gengið bæði seitit og illa. I Norðursjónum hitti flotinn
fyrir ettska botnvörpunga við veiðar. Það var í þoku og nátt-
myrkri. Rússar brugðu upp rafljósutn, hitgðu botnviirpuskipin vera
japanska tuudurbáta og skutii stim þeirra í kaf. Bretar brugðust