Skírnir - 01.01.1905, Page 78
78
rtlemiar fréttir.
á sínii bandi. Þessi hirð-klíka kvað vera gjörsneydd öllum skilningi
á kröfniii stjórnbreytingaimmna. og (jvi' lítil von um að hiin láti
nokkurntíma undan, fyr en gengið er af helztu mönnunum dauðum.
Eftir aramótin má svo heita að uppreist væri um alt ríkið, eu í
svipinn tókst þó að kæfa hana niður með stórmorðum og fangels-
unum. I St. Pótursborg voru verkamenn skotnir niður svo þúsund-
um skifti á torginu framan við keisarahöllitm 22. jati.; ætluðu
þeir að ná viðtali við keisarann og beiðast umbóta á kjörum sínum.
Til þess að bæla uppreisnina niður varTrepoff hershöfðingja fengið al-
ræðisvald yfir St. Pétursborg og greud, en keisarinn flutti burt úr borg-
inni. Verkmannadrápsins hefndi leynifélag byltingamanna með
því að drepa Sergíus stórfursta, föðurbróður keisarans, því hann,
ásamt bróður sínum, Valdímír.var talinu upphafsmaður að stórmorð-
unum, en VTladímír lysti yfir opinberlega, að hann ætti þar engan
hlut að máli. Sagt er að bæði keisarinn og móðir hans hafi feng-
ið tilkynuing frá stjórn leynifólagsins um, að þau væru dæmd þar
til dauða, og hafa sams konar heiti sjaldan brngðist áður.
Skömmu eftir að bændaánaiiðinni létti á Rússlandi, 1861, fékk
rússnesk alþýða dálítinn vísi til sjálfstjórnar í sveita- og héraða-
málum. Með lagatilskipun frá 1864 eru hinar svokölluðu »sem-
stvóur« stofnaðar, en það eru nefndir, sem falin var umsjá ýmsra
almennra mála, og fengu þær um leið vald til að leggja skatta á
menn, hver í sínu héraði. Þessar nefndir voru upphaflega óháðar
embættismönnum stjórnarinnar; fjdkjastjóra.rnir skyldu aðeins gæta
þess, að samþyktir þeirra færu ekki útfyrir takmörk laganna.
1890 var aftur dregið úr valdi þessara nefnda; fylkjastjórunum
fengið úrskurðarvald yfir ályktunum þeirra, svo að þeir gátu felt
úr gildi þau ákvæði sem þeim þóttu óþörf. Þá náðu og aðals-
mennirnir meiri ráðum í nefndunum en þeir höfðu áður haft.
Upphaflega var kjósendam til nefndanna skift í þrjá flokka
eftir efnahag, en nú var þeim skift í þrjá flokka eftir stéttum:
aðalsmenn, bændur og borgara, og voru aðalsmönnum ætluð
fleiri sæti í nefndunum en hinum flokkunum báðum. Þetta
fyrirkomuhtg er nú komið á í 34 fylkjum, og í 9 fylkjum að auk
með þeim takmörkunum, að stjórnin kýs þar nefndirnar. Fylkin
skiftast í héröð og er í hverju hóraði héraðsnefnd, en í hverju
fylki fylkisnefnd, og kjósa héraðsnefndirnar þangað menn, en auk
þeirra eru ýmsir aðalsmenn og æðri embættismenn skjálfkjörnir.
»Semstvóurnar« hafa komið mörgu þörfu og góðu til leiðar. Með-
al þeirra mála sem þær hafa haft umráð yfir eru skólamál, heil-