Skírnir - 01.01.1905, Síða 81
Utlendar fiéttir.
81
ellilasleika, en Gústaf ríkiserfingi tekið við henni, og hafa Norð-
menn verri trú á honum en föður hans.
Norska ráðaneytið hefir nú sagt af sér völdum út úr þessum
ágreiningi urn konsúlamálið. Hagerup ráðaneytisformaður og fleiri
vildu slíta sambandið við Svía, þó með samningum frá beggja hálfu
og í fullu bróðerni, og þvi nráli fylgdi nú Björnstjerne Björnson;
ætlun þeirra er, að einhver sænski priusinn verði konungur í Nor-
egi. Aðrir af ráðgjöfunum vildu, að norska þingið samþykti lög
um, að Noregur skyldi framvegis hafa sérstaka konsúla og
fengju þau lög gildi þegar þrjú þing hefðu samþykt þau, hvað
sem konungur og Sviar segðu. Fyrir þessari stefnu gekst Mic-
helsen ráðherra og varð hún ofan á. Konungur bað Hagerup að
halda völdum þangað til málið væri í þetta sinn komið gegnum
þingið. En ætlað er, að Michelsen verði síðan falið að mynda nýtt
ráðaneyti.
Frá ymsum löndum. I Baudaríkjunum var Roosevelt
endurkosinn forseti síðastl. haust með ntiklum atkvæðamun.
I Frakklandi eru orðin ráðaneytaskifti. Combesráðaneytið
beiddist lausttar í miðjum janúar, hafði þó enn meiri hluta í þing-
inu, en þótti hann of lítill, 287 atkvæði móti 281. Combes kom
til valda 7. júní 1902 og hefir því lengi haldið völdum, eftir því
sem um er að gera í Frakklandi. Rouvier, gamall stjórnmálamaður,
varð eftirmaður hans, og kvað halda fram sömu stefnu, en þó eigi
vera jafneittdreginn óvinur kaþólskra klerka og Combes.
I síðasta Skírni er getið um santninga milli Breta og Frakka
um yfirráð í Norðurafríku og játuðu Bretar þar forráðarétti Frakka
að Marokkó. En Marokkó er að nafni óháð ríki og neita íbúarnir
fastlega afskiftum Frakka af málum sínum og búast til að reka þá
með her af höndum sér.
Krúger, fyrv. Búaforseti, andaðist 14. júlí f. á.
15. marz p. G.
6