Skírnir - 01.01.1905, Page 83
Kitdómar.
85
Ofr um leið íslenzkari, ef aukamálsi;ieinutn væri v/ðar en gjört hefir
verið snúið í beina frásögn.
Framan við æfint/rin hefir þvðandinn ritað góða grein um
Andersen og skáldskap hans.
Ytri frágangur bókarinnar er fremur góður, myndir margar.
Fremst er ágæt mynd af Andersen sjálfum. Bókin ætti að
vera kærkomin ungum og gömlum. G. F.
4; 4; $
Matth. Jochumsson: Ljóðmæli III. Rvík 1904. [Kostnaðarm. David
ÖstlundJ.
I þetta bindi er, eins og í tvö hin fyrri, safnað bæði gömlum
kvæðum og nyjum. Flokkaskipunin er, eins og fyrri í biudunum,
mjóg af handahófi. Sum af beztu kvæðunum í eldri útgáfunni eru
nú fyrst í þessu bindi tekin inn í nyja safnið, svo sem »Nyársósk
Fjallkonunnar«, »Móðurkveðja« o. fl. Af eldri þyðingum eru hjer
t. d. kvæði eftir Byron, snildarlega þydd, bæði kvæði úr »Manfreð«
og fleira, sem áður var prentað aftan við þyðingu síra Matthíasar
á »Manfreð«. I þessu bindi er þó miklu meira nytt, þ. e. a. s.
kvæði, sem ekki hafa áður verið prentuð, eða þá kvæði, sem prent-
uð hafa verið til og frá í dagblöðum. Sumt er nylega ort. Prent-
villur eru færri í þessu bindi, en hinum fyrri, og engar meittlegar,
af þeirn sem eg hef rekist á, aðrar en sú, að kjaftur verður að
kraftur á 84. bls., í skopkvæði til Gests skálds Pálssonar. A 6.
bls. stendur að fyrir af, á 10. bls. samur fyrir sannur og á 19.
bls. njóta fyrir njóla, og fleira mun vera til og frá af því tagi.
Hefði prófarkalestur á kvæðunum frá upphafi átt að vera betri.
Annars er frágatigurinn vandaður, eins og fram hefir verið tekið
um hin fyrri bittdi.
Til þess að dæma um einstök kvæði í bittdinu er hér ekki
rúm, og því síður til þess að tala um skáldskap stra Matthíasar
yfir höfuð. Ætlunin er aðeins, að minna á útkomu þessa bindis,
og á kvæðasafuið í heild sinni. Það æt.ti að fá sem flesta kaupendur.
I ár á að koma út IV. og síðasta bindi kvæðanna og fylgja þvt
æfisaga skáldsins, rituð af sjálfum houum. I ár á líka að koma
út 3. útgáfa af þyðingu hans á Friðþjófs sögu Tegners. Og í ár
verður síra Matthías sjötugur. En ellintörk sjást engin á honum
enn, hvorki andlega nó líkamlega. p. G.
* * *
6*