Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 87

Skírnir - 01.01.1905, Side 87
Ritdómar. 87 allir sömu útreiðina og bana illa; kirkju og vísindum, framförum, menningu og listum er öllu gjört jafnhátt undir böfði. Það er ekki einu sinni haft svo mikið við þessi átrúnaðargoð manna, að þau sóu talin djöfulsins verk, heldur eru það óbrotnir verkamenn hans, sem hafa stofnað alt þetta og stjrt því. — Hór talar maður, sem er sannfærður um, að siðmenning vorrar aldar sé stórt spor í þá áttina, sem leiðir norður og niður«. Þ/ðingin og eftirmálinn munu vera eftir Guðmund Hannesson lækni og er hvorttveggja pr/ðisvel af hendi leyst. Frágangur ágætur. G. F. Eislandbliiten. Ein Sammelbuch Neu-lslándischer Lyrik von J. C. Poestion. Leipziff und Miinchen 1905. [Verlag von Georg MiillerJ. Bók þessi er úrval íslenzkra kvæða frá byrjun 19. aldar og fram á vora daga, í þ/zkum þyðingum eftir hinn heiðraða höfund og hefir hann nú um nokkur ár haft hana milli handa, eftir að hann hafði leyst af hendi hið stóra ritverk sitt »Islándische Dichter der Neuzeit«, (1897), sem hefir inni að halda ítarlegt yfirlit yfir bókmentir vorar frá siðaskiftunum ásamt mörgum s/nishornum íslenzks skáldskapar á seinni öldum. Höfundurinn hafði þar unnið þrekvirki mikið, því í þeirri bók er afarmikill fróðleikur fólginn fyrir hvern, sem það efni vill kynna sér. Hann hefir þar með sinni frábæru elju, vandvirkni og skarpleika int það verk af hendi, sem einhver innlendur helzt hefði átt að gera, en fyrst það hefir ekki orðið, sem ekki er með öllu minkunarlaust fyrir oss, þá er því meiri þakkar og virðingar vert, að útlendur maður hefir orðið til þess að gera það svo vel, og einmitt á þeim tíma, þegar /ms mikilvæg atriði voru farin að fyrnast, sem hattn í þeirri bók hefir bjargað frá gleymsku. Það er ekki lítið skarð, sem þar hefir verið fylt. En nvt er þessi bók »Eislandblúteti«, sem hér skal til álita tekin, beint áframhald þessa fyrtiefnda ritverks og því til fyllingar. Eru í bók þessari um 150 kvæða eða vísna þ/ðingar og er það eigi alllítið safn að vöxtunum, en um hitt er ekki minna vert, hversu vel er frá því gengið, valið yfirleitt gott og þyðingarnar svo, að engin er meðal þeirra sem sagt verði um að hafi mistekist, en margar svo snildarlegar að það er aðdáunarvert. Það er ekki lítill vandi, að þ/ða svo vel að manni finst sem maður só að lesa kvæði frumort á þyzku að því er mál og kveðandi stiertir, en finnur þó jafnframt í fullum trúleik kjatna og fegurð íslenzku frumkvæð-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.