Skírnir - 01.12.1906, Side 21
Skírmr.
Feröaþættir frá Bretlandi.
309
á annari, þar sem ein væri fullnægjandi; þannig er mörp-
um miljónum kastað í sjóinn, en fólkið verður auðvitað
að borga brúsann.
Við fórum með miðbrautinni (inidland railway), sem
liggur um hin miklu iðnaðarhéruð og verksmiðjuborgir, um
landsmiðjuna upp til Carlisle á takmörkum Skotlands;
þar mætast brautir úr öllum áttum og hefi eg aldrei (ekki
einu sinni í hinum mestu stórborgum) séð og heyrt annan
eins gauragang eins og þar. Hraðlestin er þægileg og veL
út búin fyrir farþega, allir vagnar samanhangandi, svo
ganga má eftir allri lestinni og mat var þar að fá og
allar aðrar veitingar er menn vildu. Hraðlestin þýtur
áfram sein kólfi sé skotið, fer oft enska mílu á mínútu,
þingmannaleið á 20 mínútum, og mætti með þeirri ferð
fara Island endilangt á 5 stundum, ef brautin væri bein.
Ekki er verið að norpa á bæjunum til þess að skila af sér
bréfum, póstpokunum er hent af lestinni í smábæjunum
og er sérstakur viðbúnaður hafður til þess að taka á móti
þeim. Framan af er snoturt land og búsældarlegt, en
þegar norðar kemur í kolalöndin verður alt ljótara, stromp-
unum fjölgar og sótugum bæjum með óhreinu verkmanna-
mori; þó er hér varla eins ljótt eins og í iðnaðarhéruð-
unum í Sachsen og Rínpreussen. Sumstaðar sjást við járn-
brautina í klettum og hlíðum kolalög og steinbrandur í
þykkum hellum, hér og hvar bera fyrir snotrar lands-
bygðir, en langmest ber þó á verksmiðjunum og kola-
svælunni. Sumstaðar er alt umturnað af námugrefti eins
og hrímþussar iiafi með kámugum klóm grufiað heldur
en ekki óþyrmilega í jarðvegi. Einkennilegast er að fara
um slík námu- og iðnaðarlönd í myrkri; eg hefi tvisvar
farið u n iðnaðarhéruðin hjá Esscn í Rínlöndum á nætur-
þeli, i kolniðamyrkri. Þar er eigi ósvipað því sem menn
hugsuðu sér lielvíti í gamla daga; lestin þýtur fram lijá
himinháum stroinpum, sótugum húsum og kolabingjuin;
innan um reykjarsvæluna sést gneistafiug og ótal blossar
og eldur hvaðanæfa með ódaun og verksmiðjuglamri, en
innan um logana sjást svartir púkar á sífeldu iði fram og