Skírnir - 01.12.1906, Blaðsíða 71
Skirnir. Úr lirt'fuin frá Jónasi Hallgrímssyni. 359
«nda vœri það heldur eigi hægt af þeirri ástæðu, að í þeim eru
mörg ummæli um nafngreinda menn, þeim eigi til lofs, sem of
•snemt er að prenta, en öll lysa bréfin miklu fjöri, og eru viða
mjög fyndin, en þó eigi græskulaust. Hér á eftir koma tvö s/uis-
horn og eitt bréf í heilu lagi að mestu.
Úr bréfi til Konráðs 11. júlí 1839.
......Jeg er búinn að ferðast fram um allau Eyjafjörð, ekki
aðeins um byggðina, heldur fjöll og afdali, eins um Oxnadal og Hörg-
ardal með öllum þeirra krókum og krám, sýnilegum og ós/nilegum.
Á morgun fer jeg norður, ef guð lofar. . . . . . Mjer hefur hálft um
hálft verið boðinn reiðhestur, svo sem í heimanmund, ef jég vildi
taka að mjer kvenmann á 18. árinu, en jeg hefi ekki þorað að lofa
því enn vegna skallans á honum Brynjólfi. Það er eins og mjer
standi hann alltaf fyrir hugskotssjónum........
Eyrsti Islendingurinn, sem jeg sá, var Konráð minn á Látrum,
þeir komu á bát, Jón húsbóndinn eineygður og K. vinnumaður
hans, og dáfalleg stúlka ung, með skarð i vörina. Jóu dró upp
Ilösku sína, og bað spéculantinn að láta á hana, en spec. sagðist
elcki mega selja neitt »nú þjer megið þá gefa mjer á hana«, segir
Jón. Nema Konráð minn svo sem til að gleðja speeulantinn, segir
við hann í hálfum hljóðum »yður er það óhætt — hann lætur
á hana 1/si aptur, blessaður verið þjer«. Þetta var rjett
fyrir innan Hrólfsskerið, og grænlendiugurinn grænbotnótti allt í
kring um okkur.
Til Konráðs. Rvík 6. marz 1841.
......Einu sinni fór jeg að sækja um brauð, en áttræður
prófastur vestur í Hvamnti, nærri því eins feitur og jeg, tók það
frá mjer.*)......Jeg er nú að kryfja kútmaga dags daglega og
þess á milli að yrkja Hulduljóð. Það verður fallegt kvæði.
Til Konráðs. Saurum í marz 1844.
»Bráðum verður sett Gymnasium heinta, segir þú, og jeg muni
geta farið úr görmunum! ertu að gera gabb að mjer ? Þú mátt úr
flokki tala, sem hefur að vísu embætti að ganga — guð láti aldrei
drambsemis djöfulinn snúa þjer frá því, sem við höfum báðir álitið
sóma vorn og heiður hingað til að k e n n a u n g u m I s I e n d-
i n g u m — þú hefur, segi jeg, að embætti að ganga, og jeg vildi
*) Brauðið, sem Jónas hefir sótt um, er Breiðabólsstaður á Skógar-
strönd. Það var veitt 23. jan. 1841 Jóni prófasti Gíslasyni í Hvammi.