Skírnir - 01.12.1906, Blaðsíða 99
Skírnir.
íslandsfréttir 1906
387
ar aS mestu á kostnað Thor E. Tuliniuss- stórkaupmanns í Khöfn,
og önnur milli Hofs í Yopufirði og Yopnafjarðarkauptúns á kostn-
að héraðsbúa að nokkru.
Talsími var lagður um Seyðisfjarðarkaupstað og Akureyri.
Bilanir töluverðar á landsímanum að haustinu og fyrri part
vetrar, en engar á sœsímanum.
Könnuð landsímaleið um Vestfirði. Það gerði norskur land-
símalagningaryfirmaður, Halvorsen.
Samgöngur. Fækkun strandbátaferða á síðasta þingi nið-
ur í 4 gerði bagalega hnekki mörgum héruðum, er notið höfðu
áður betri samgangna við höfuðstaðinn og önnur lönd. Strand-
ferðaskip Samein.-gufuskipafélags héldu og óvenju-illa áætlun.
Auk þesa félags hélt Thorefélag uppi bæði millilandaferðum og
ferðum umhverfis land, og enn tvö félög önnur við Austurland og
Noröurland: 0. Vathnes erfingjar og norskt fólag, Vestlandske Lloyds.
Tíðarfar. Vetrarþyngsli mikil norðanlands alt frá ársbyrjun
og því næst vorharðindi áköf fram undir fardaga. Vægara í öðr-
um landsfjórðungum fyrstu vikurnar af árinu. Þorri snjóameiri
en dæmi eru til 20—30 ár alstaðar, nema á Austurlandi; þar var
vetur allgóður, miklar fannkomur að eins um hríð á útmánuðum.
Vorharðiudin gengu um land alt, ýmist norðankólga eða hretviðri
af öörum áttum; hlýindadagar örfáir. Frost að vetrinum ekki
áköf; syðra komust þau hæst í 12—13 stig (C.)á þorra, og 18 á góu.
Frá fardagabyrjun og fram undir slátt var gæðatíð, skiftust
á vætur og sólblýindi. Júlímánuður mestur fremur kaldur og
hryssingslegur; um hann miðjan bleytukafald um alt Norðurland
3 sólarhringa samfleytt. Austanlands snjóaði í hverjum mánuði
upp frá því, og var stundum kafaldsbylur dægrum saman. Um
hina landsfjórðungana var ágústmánuður blíður og hagstæður, og
fyrri hluti septembermán. Haustið rosasamt mjög. En þíður
héldust fram um miðjan nóvember. Jólafastan snjóasöm heldur.
V e r z 1 u n. Verð á innlendri vöru yfirleitt hátt, á ull með
alliahæsta móti, alt að 1 kr. 15 a. Fiskverð sömuleiðis í hæsta
lagi. Eitinig hátt verð á kjöti og gærum. En fremur lágt á tólg
og mör.
Þá var og útlend vara með sæmilega góðu verði. Það færist
nær sauni eftir því, sem' verzlunum fjölgar og samkepui vex. Þó
25*