Skírnir - 01.12.1906, Blaðsíða 31
Skirnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
319'
og vorum þar tvo daga. E1 i e líkist öðrum bæjum á þessari
strönd og er langur og mjór með sjó fram, liúsin eru
flest lág, bygð úr sandsteini, sterkleg, veggjaþykk og
skrautlaus, en með mörgum strompum. Þó bærinn sé
örlítill eru þar þrjár kirkjur handa trúflokkum þeim sem
þar búa. Kirkjugarðar eru kring um kirkjurnar og eru
þeir grasflatir með standandi legsteinum, en þar er enginn
greinarmunur leiða og engar grindur kringum hina ein-
stöku reiti. Landið er að mestu bert og skóglaust hér
í kring og sprettur lítt í görðum sakir sjólofts. Hvergi
var skjól að fá i sumarhitanum, sem nú var mjög mikill.
Allstórir skógarlundir eru þar reyndar við bæinn, en þar
má enginn koma, skógarnir eru umgirtir af háum múrum
og eignir einstakra auðkýfinga, sem eiga sér þá til gam-
ans og hafa fyrir dýragarða, skjóta þar dýr og fugla
með vinum sinum einu sinni eða tvisvar á ári, en fólkið
fær ekki að koma þar. Slíkt er algengt á Skotlandi, að
auðmennirnir hafa lagt undir sig skógana, svo þeir eru
til engra nota fyrir landslýðinn.
Fram með ströndu eru hjá Elie miklar fjörur og í
fjörunum norður af bænum og suður með Largoflóa má
sjá hinar einkennilegu fornu gosmenjar, sem fyr gátum
vér. Grundvöllur þessara héraða eru ýmsar myndanir frá
kolatíma, einkum sandsteinn og fiögur, hafa eldgosin
brotist gegnum þessi lög og svo hefir sjórinn
brotið framan af ströndinni. Eldgosapípurnar sjást þar í
sandsteininum fullar af ösku og hraunmolum (móbergi
og þussabergi) með innskotsgöngum af blágrýti. Eldfjalla-
opin eru sum regluleg, kringlótt eða afiöng ineð hring-
skiftum lögum, móbergið og þussabergið stendur sumstað-
ar upp úr sandsteininum með margvíslega löguðum
hnúskum og dröngum, sem sjórinn hefir etið í sundur;
sumstaðar eru blágrýtisgangar eða stuðlabergslög. Stærstu
opin eru um enska mílu að þvermáli, en fiest eru miklu
minni. Svipaðar myndanir eru víða í móbergshéruðum á
Islandi, en þeim hefir enn lítill gaumur verið gefinn.
Þegar eg hafði skoðað ströndina beggja megin við Elíe