Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1906, Síða 50

Skírnir - 01.12.1906, Síða 50
338 Þrjár spurningar. Skírnir. sem vandlegast gaum að rás viðburðanna, þá gæti hann, einn síns liðs, alls eigi skorið alt af rétt úr því, hvað gjöra skyldi í hvert skiftið, heldur þyrfti hann þar að njóta ráðs viturra manna og eftir þekkingu þeirra ætti að fara þegar afráðið væri, hvað gjöra skyldi í hvert sinn. Og enn sögðu aðrir, að stundum stæði svo á að enginn tími væri til að leita ráða hjá ráðgjöfunum, held- ur yrði samstundis úr að skera, hvort réttur tími væri til framkvæmda eða ekki. Raunar yrði það ekki vitað með vissu, nema þegar hægt væri að sjá fyrir, hvað verða mundi. En það gætu töframenn einir. Þess vegna yrði að spyrja töframenn um það, hve nær hin rétta stund væri til hverrar framkvæmdar. Jafn ósamróma voru svörin við annari spurningunni. Sumir sögðu að ráðgjafarnir og aðrir stjórnarmenn væru konunginum að mestu liði; aðrir sögðu að prestarnir væru það; enn töldu aðrir læknana nauðsynlegasta og enn aðrir kváðu allra mest gagn að hermönnunum. Þriðju spurningunni, hvaða málefni væri mest um vert allra, svöruðu sumir svo, að visindin væru heimsins mesta velferðarmál; aðrir sögðu að hernaðarlistin væri það; og enn aðrir töldu guðsdýrkunina aðalatriðið. Öll voru svörin ósamhljóða; konungur tók því ekkert mark á neinu þeirra og gaf engum launin. Hann vildi fá betri svör og réði því af að spyrja gamlan einbúa, sem hafði mikið orð á sér fyrir vizku sína. Einbúinn bjó úti í skógi; þaðan fór hann aldrei og veitti að eins óbrotnum almúgamönnum viðtöku. Kon- ungurinn fór því í fátækleg klæði; og er hann nálgaðist einbúakofann, sté hann af baki, skildi fylgdarmenn sína eftir og gekk einn á fund öldungsins. Þegar konungurinn kom, var einbúinn að stinga upp reitina í garðinum við kofann sinn. Hann tók kveðju konungs, en hélt áfram verki sinu. Hann var hrumur og magur og dró andann þungt í hvert sinn er hann stakk rekunni í moldina og tók upp hnaus.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.