Skírnir - 01.12.1906, Side 63
Skírnir.
Nokkur orð um bókmentir vorar
351
Hvað eigum vér þá að gera til þess að bætt verði úr
þessum skorti?
Yér eigum að bæta'svo alþýðumentun vora, að þjóð vor
geti skilið rétt og metið það, sem vér eigum gott og fag-
urt í bókmentum vorum. Vér eigum að vísa á bug öllu
ónýtu bókarusli með því að kaupa þáð hvorki né lesa;
en til þess að því takmarki verði náð að fullu, þurfum
vér, auk hins fyrnefnda, að fá árvakra, skarpskygna gagn-
rýni á öllu því, sem út er gefið. Og vér eigum að lok-
um að kaupa og lesa bækur þeirra manna, sem sýna það,
að þeir geta skrifað það, sem einhver slægur er í, og vér
eigum að veita þeim svo mikinn styrk, að þeir geti stundað
þetta starf einhuga og óskiftir að svo miklu leyti sem
unt er og þörf er á því. En vér eigum ekki að veita
þetta sem ölmusu, heldur eins og sjálfsögð laun, sem þeir
eiga fyrir starf sitt i þarfir þjóðarinnar. Og þá er eg viss
um, að bókmentir vorar glæðast og dafna áður langt um
liður. I íslenzku þjóðlífi, bæði fyr og siðar, eru svo mörg
og mikil yrkisefni, að nóg verður til að skrifa, ef skil-
yrðin breytast til batnaðar. Alt þetta er nauðsyn fyrir
oss og þjóðernisleg skylda. Með því að sinna þessu með
alhuga og eindregnum vilja, verður oss auðið að sjá meira
en bláfölva dagsbrún á himni nútíðarbókmenta vorra.
Með því að rækja þessa skyldu fáum vér á endanum
sjálfstætt vald á öfiugri, ósvikinni lyftistöng, sem hafið
getur þjóðmenningu vora.
BENEDIKT BJAKNAR80N.