Skírnir - 01.12.1906, Síða 69
Skírnir.
Stjórnarskrá Finna hin nýja.
357
En munurinn er sá, að hér og í Norvegi er kosið í
þá nefnd til margra þinga, alt kjörtímabilið út, og annað
hitt, að nefndin er látin standa jafnfætis aðalþinginu,
neðri deild hér og óðalsþinginu í Norvegi. Þær hafa,
þessar minni deildir, bæði frumkvæðisrétt og neikvæðis
við lagafrumvörpum og fjárveitingum m. m.
Fyrir því svipar bæði stórþinginu og alþingi mjög
til tvískiftra þinga í stjórnlagalegum skilningi.
En stórnefndin flnska hefir að eins ráðgjafarvald,
og likist ennfremur nefnd en ekki þingdeild að því leyti,
að fundir hennar eru ekki haldnir í heyranda hljóði,
heldur mega þingmenn einir hlýða á það sem þar fer
fram, og ráðgjafarnir því að eins vera á fundum, að stór-
nefndin leyfi það.
Þingmenn á Finnlandi hafa fast þingfararkaup, jafnt
hvar sem þeir eiga heima og hvort sem þing stendur
lengur eða skemur. Það eru 1400 mörk eða nær 1000 kr.
En dregið er af þeim 15 mörk (rúmar 10 kr.) hvern dag,
er þeir vanrækja þing að forfallalausu, og eru þeir sekt-
aðir að auki, ef mikil brögð verða að fjarvist þeirra.
Ekki geta finskir þingmenn sagt af sér þingmensku,
hafi þeir tekið hana að sér, fyr en kjörtími þeirra er úti,
nema þeir sanni lögleg forföll eða hafi aðra lausnarástæðu,
er þingið metur gilda. Þetta er mælt að stafi af því, að
Finnar eru ekki meira en svo öruggir um sig enn við
gjörræði eða ofríki af hendi stjórnarinnar í Pétursborg,
sem þeim er margfalt ofurefli, ef í það fer; og yrði þá
huglitlum þingmönnum við þeirri freistni hætt, að skjótasér
undan öllum vanda með því að hopa af hólmi.
Kjörtíminn er 3 ár.
Aths. Efnið í grein þessari er tekið mestalt úr ritgerð í Gads
Danske Magasin í haust eftir Knud Berlin.
Orðið Finnar merkir hér sama sem Finnlendingar, þótt þar í landi
sé mikið af Sviura innan um og nokkuð af Rússum.
Lenda menn læt eg merkja sama sem aðalsmenn, þótt annarar merk-
ingar sé nokkuð í fornu máli.
B. J.