Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 3

Skírnir - 01.08.1909, Page 3
Prestarnir og játningarritin. 195 línis sprotnar af ókirkjulegri sundrungaviðleitni, þá að minsta kosti altof ótímabærar til þess að þeim væri að nokkru sinnandi. Sannleikurinn ersá, að hvergi hefir íhaldssemi manns- andans fremur látið til sín taka en einmitt innan vébanda kirkjunnar og trúarbragðanna, og skilningurinn á öllum frelsiskröfum einstaklingnum til handa átt jafn erfitt upp- dráttar og þar. Svo hefir þetta verið á öllum tímum og er enn í dag í mörgu tilliti — einnig innan hinnar evan- gelisku kirkju, sem eftir allri hugsjón sinni hefði einmitt átt að verða heimkynni andlegs frelsis í öllum greinum og þá ekki sízt í þeim efnum, sem hér ræðir um. Því verður ekki neitað, að með siðbót Lúters ljómar nýr dagur yfir kirkjunni, dagur, sem boðar frelsi frá margra alda ánauð, sannfæringar- og samvizkufrelsi innan kirkjunnar. En það er ekki kirkjunni að þakka, að sú hin kirkjulega frelsishreyfing, sem Lúter hratt af stað, kafnaði ekki í fæðingunni. Því að það fær ekki duli t. neinum, sem þekkir sögu vorrar evangelisku kirkju, aö mjög mikið af starfi hennar eftir daga Lúters miðar að því að reisa skorður við því frelsi kirkjunni til handa, sem Lúter barðist fyrir, og fer í ýmsu tilliti i öfuga átt við það sem hann ætlaðist til í fyrstu. Ég segi í f y r s t u, því að það fær ekki dulist, að sjálfur Lúter tekur í ýmsu tilliti að gjörast »ólúterskur« með aldrinum og lendir þá jafnvel í mótsögn við sínar eigin siðbótarfrumreglur. Þessi staðreynd, svo skiljanleg sem hún er og afsakan- leg, hefði þó ekki þurft að verða framþróun kirkjunnar til meins, ef lærisveinum Lúters og sporgöngumönnum hefði verið það ljóst frá byrjun, að siðbótin er verk hins u n g a Lúters, sem í mörgu tilliti er nokkuð annar mað- ur en hinn gamli Lúter. En þetta var eftirkomendum Lúters ekki ljóst, og fyrir því gat lúterskan orðið að »lútersku<, þ. e. kirkjulegri stefnu, sem fremur auðkend- ist af anda ófrelsis og þröogsýni, en sönnum frelsis og framsóknaranda, og hin evangeliska kirkja um langan aldur fjarlægst svo hugsjón sína, að ekkert átti þar síður

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.