Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 7

Skírnir - 01.08.1909, Page 7
Prestarnir og játningarritin. 199 (Landsmödet), sem sízt verður borin á brýn byltingagirni í nokkurri mynd, en tekur þó vel í þetta mál og sam- þykkir tillögu um endurskoðun játningarritanna. Síðan hefir málið verið allítarlega rætt frá báðum hliðum í höf- uðmálgagni íhaldsstefnunnar í norsku kirkjunni (Luthersk Kirketidende). En því hefi ég bent á þetta, að ég vildi með því sýnt hafa þeim, sem á annað borð vilja sjá það, að kenn- ingarfrelsiskrafan er ekki sprottin af neinni vantrú eða löngun til að kollvarpa, heldur af einlægri virðingu fyrir stöðu hins kirkjulega kennimanns og kennimanninum sjálfum sem siðferðilegum persónuleika. Þegar vér nú lítum til vorrar eigin kirkju, þá hefir lítið verið rætt um þetta mál meðal vor fyr en núna allra síðustu árin og lítið um það skrifað, enda skilningur manna á málinu yfirleitt býsna ófullkominn. Fyrir 10 ár- um hafði prestastefna vor málið á dagskrá, en síðan hefir því lítið verið hreyft þangað til hin ágæta ritgjörð síra Haralds Níelssonar um kenningarf relsi presta kom út í Skirni í fyrra sumar, fyrsta tilraunin, sem gjörð hefir verið með oss til að skýra málið. Meðal landa vorra vestra hefir málið verið á dagskrá síðustu tvö árin. Síra Fr. J. Bergmann hefir varið kenningarfrelsið með miklum dugnaði í »Breiðablikum«, en »Sameiningin« hamast á móti því og flutt hverja greinina annari furðulegri um málið, að ógleymdu kirkjuþingserindi síra Jóns um »g i 1 d i t r ú a r j á t n i n g a n n a«, sem þegar hefir verið nefnt. Hér á landi hefir að minsta kosti venjan löghelgað, auk hinna þriggja svonefndu allsherjar játninga fornkirk- junnar, tvær af sérjátningum hinnar evang.-lút.kirkju, Ágsborgar-játninguna og fræði Lúters. Eins og síðar mun sýnt verða, er lögfesting þessara játningarrita hjá oss mjög svo vafasöm,nema ef svo mættisegja, að hana leiði af sjálfri lögtekningu hinnar evang.-lút.-kirkju sem kirkju landsins með lögtekning kirkjuordinantíu Kristjáns 3. árin 1541 og 1551. En engu að síður hafa íslenzkir prestar verið e i ð bundnir við »játningarrit hinna dönsku kirkna«

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.