Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 17

Skírnir - 01.08.1909, Side 17
Prestarnir og játningarritin. 209 íþað séþví ekki annað en einföld hlýðnisskylda vorvið þessa -vora andlegu móður, að taka þessari ráðstöfun með auð- mýkt og undirgefni i þakklátri viðurkenningu þess, að hún hafi þar viljað það eitt, sem hún, leidd af guðs anda, vissi, að oss börnum sínum væri fyrir beztu. Þessari skoðun er ef til vill ekki haldið beint fram, en hún skín þó út úr orðum þeirra manna, sem halda vilja sem fast- ast við játningahaftið. Og margur maðurinn er svo gott barn móður sinnar, að hánn beygir sig í auðmýkt fyrir þessari ráðstöfun. En það er þó dálítið að athuga við allan þennan hugsanaferil, svo fallegur sem hann kann að virðast og kirkjulegur, og það er, að forsendur hans eru býsna veik- ar. Vér getum auðvitað aldrei fullþakkað vorri andlegu móður, kirkjunni, fyrir þá blessunarstrauma, sem hún, eftir því sem aldir liðu fram, hefir veitt út til vor, barna sinna. En þegar vér þökkum henni fyrir játningarritin nð því leyti sem þau hafa verið notuð sem kenningar- haft á prestana, þá beinum vér þakklætinu í ranga átt. Kirkjan sem kirkja, á miklu minni þátt i innleiðslu og lögfestingu játningarritanna, en alment er haldið. Eg mintist áðan á uppruna fornkirkju-játninganna þriggja, hversu uppruni þeirra reyndist nú við nákvæm- ari rannsóknir að vera allur annar en um eitt tímaskeið hefði verið haldið, — hversu engin þeirra bæri nafn sitt með réttu, hversu engin þeirra yrði talin allsherjar-játning kristilegrar kirkju. En gerum vér nú ráð fyrir, að t. a. m. »játningin frá Xíkeu og Konstantínópel«, svo rangnefnd, sem einna helzt ætti að geta talist allsherjar-játning, hefði ■verið löglega samþykt á einhverjum grískum kirkjufundi af einhverjum grískum biskupum, meðfram neyddum til þess af einhverjum hálfheiðnum eða að minsta. kosti litt- kristnum keisara fyrir meira en 1500 árum, — hvaðan ætti sá kirkjufundur að hafa heimildina til þess að binda kirkjuna um fjölda ókominna alda við útlistanir sínar á höfuðatriðum hinnar kristnu trúar'? Vérvitum auk þéssa, að haldnir voru um sama tímaskeið fjöldi kirkjufunda, 14

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.