Skírnir - 01.08.1909, Page 33
Abraham Lincoln.
1809—1909.
Á aldarafmæli Abrahams Lincolns var það bert, að
•ekkert mikilmenni Bandaríkjanna hefir getið sér meiri
ástsæld en hann með þjóð sinni. Ef Bandaríkjamaður ætti
að leysa úr því, af hverju ástsæld og hylli Lincolns væri
sprottin, mundi hann líklegast svara einhvern veginn á
þá leið: »Af því að hann er öðrum fremur hold af okk-
ar holdi og blóð af okkar blóði og æfiferill hans ímynd
vaxtar og viðgangs þjóðfélags okkar.« Og vér getum
bætt við: öll æfi Lincolns er ljós og órækur vottur þess,
hve miklu einbeittur vilji og þrautseigja samfara góðum
gáfum fær afkastað í heiminum.
I stuttri ritgerð eru engin tök á að gera ítarlega grein
fyrir æfi og starfsemi þessa ágæta manns. Vér verðum
að láta oss nægja að vikja stuttlega að helztu æfiatriðum
hans og lyndiseinkunn og færa síðan nokkur rök að því,
hvernig hann gerist leiðtogi þjóðar sinnar á mestu hörm-
ungatímum hennar og leiðir hana með þreki sínu, hygg-
indum og drengskap úr botnlausum ógöngum fram á leið
til sæmdar og sannra þjóðþrifa.
Abraham Lincoln átti til fátækra foreldra að telja,
sem höfðu leitað vestur um haf frá Englandi skömmu fyrir
miðja seytjándu öld. Svo er að sjá sem ríkur farhugur
hafi ráðið ferðum þessara ættfeðra hans. Þeir fluttust sveit
úr sveit og land úr landi til þess að höndla gæfuna. Og
Abraham litli fæddist í Kentucky, en ólst upp í rikjun-
15