Skírnir - 01.08.1909, Qupperneq 34
226
Abraham Lincoln.
um Indiana og Illinois, er voru þá útjaðrar Bandaríkjanna'
vestur á bóginn.
Þegar Abraham var 7 vetra, fluttist hann með foreldrum
sinum til Indiana. Faðir hans, Thómas Lincoln, var fátækur
trésmiður, sem þótti á yngri árum hverflyndur í ráði sínu,.
en móðir hans var stilt kona og vel viti borin og fyrir
manni sínum í hvívetna. Þegar Thómas Lincoln hafði
dvalið nokkra hríð í Indiana, reisti hann handa sér og
fjölskyldu sinni allrúmgott stokkahús. Hann vann einn
að smíðinu ásamt Abraham litla syni sínum, er hjálpaði
föður sínum eftir mætti. Hann fékk nú öxi í hönd, þótt
ungur væri, og lærði fyrst að höggva smágreinar og síð-
an tré. Frá því hann var 8 vetra og þar til hann hafði
einn um tvitugt leið varla sá dagur, að hann tæki sér
ekki öxi í hönd, enda varð hann, er hann eltist, einhver
bezti og afkastamesti viðarhöggvari í Indiana.
Hús Thómasar var ramlega viðað, en að öðru leyti
óvistlegt og af vanefnum gert. Einar dyr og einn gluggi
voru þó á húsinu, en í stað rúðuglers varð eigandinn að
notast við skjá. öll búsgögnin voru 2 rúmstæði, lítið borð
og 2 stólar, pottur og panna og örfá geymsluílát. Rúm-
fatnaðurinn voru nokkrar ábreiður og hálmpokar. Viður-
værið var að sama skapi einfalt og óbrotið, nær því ein-
göngu brauð og villibráð. Við þennan viðurgerning, sem
hér er stuttlega drepið á, átti Abraham að búa nokkur ár.
Snemma bar á því, að Abraham litli var námfús mjög
og hneigður til bóka. En einu bækurnar sem til voru í
kotinu, voru stafrófskver, spurningakver og heilög ritn-
ing. A æskuárum hafði Abraham lítið af fræðslu að segja
og mörgum árum síðar taldist honum sjálfum svo til, að
að alls og alls hefði hann notið níu mánaðar tilsagnar í
skólum.
I föðurhúsum vandist Abraham snemma alls konar
vinnu, en löngu vetrarkvöldin sat hann við arin, er vel
logaði á skíðunum, því að ekki var um önnur ljósfæri að
ræða, og las eða dró til stafs. Ritföngin voru oftlega trjá-
börkur eða tréspænir og kolamoli. Stundum þegar föna