Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 39

Skírnir - 01.08.1909, Page 39
Abraham Lincoln. 231 andlegum yflrburðum og mundi því sennilega eiga glæsi- lega framtið fyrir höndum, ef hann kæmist á rétta hillu í lífinu. »Hefir yður aldrei dottið í hug að nema lög,« sagði Stuart einn dag við Lincoln. »Nei aldrei, enda þótt ýmsir hafi hvatt mig til þess,« mælti Lincoln. »Og hvers vegna hafið þér ekki farið að ráðum þeirra?« »Mig brestur bæði gáfur og fé til námsiðkana.« »Sennilega gerið þér of mikið úr örðugleikunum,« mælti Stuart, »tíminn mun leiða í ljós hvort yður brestur gáfur. Þér getið stundað námið í hjáverkum yðar. Ef þér stundið það með árvekni og kostgæfni, getið þér •orðið málaflutningsmaður innan þriggja ára«. »En lögfræðibækur eru dýrar,« sagði Lincoln. »Bækur getið þér fengið að láni hjá mér, bókasafn mitt er yður heimilt.« Þessi samræða fekk Lincoln mikið að hugsa, en um síðir afréð hann að fara að orðum Stuarts og lagði einn góðan veðurdag af stað fótgangandi til Springfield til þess að vitja bókanna. Yegalengdin fram og aftur var um 44 enskar mílur. Lincoln stundaði laganámið með frábærri elju. Hann dró sig í hlé frá öllum skemtunum og las um nætur, þegar honum sakir annríkis vanst ekki tími til þess á daginn. Arið 1837 tók hann eins konar próf í lögum og fluttist skömmu síðar til Springfield og gerðist þar félagi Stuarts þess, er áður var nefndur. Gat hann sér innan skamms góðan orðstír sem málaflutningsmaður og margar sögur ganga af réttsýni hans og ráðvendni í málarekstri. Þykir vel hlýða að greina hér frá tveimur þeirra, með því að þær auðkenna Lincoln allvel. Einn dag kom maður nokkur til hans og bað hann að flytja fyrir sig mál. »Skýrið mér frá öllum málavöxtum,« sagði Lincoln. Aðkomumaður gerði það með mikilli mærð og mála- lengingum, en varð heldur en ekki hvumsa við, er Lincoln

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.