Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 43

Skírnir - 01.08.1909, Page 43
Abraham Lincoln. 235 •menn af ýmsum flokkum reistu nýjan stjórnmálaflokk, er nefndust Þjóðveldissinnar, og bundust samtökum um, að hefta útbreiðslu þrælahaldsins. Brátt varð sú raun á, að afnám Missouri-sáttmálans var hið mesta glapræði, eins og Lincoln hafði fyrir sagt, og á samveldisþinginu neyddist Douglas til að snúast sjálfur gegn nýmæli sínu og ráðstöf- unum þeim, er af því leiddu. Nokkru síðar kepti Lincoln við Douglas um kosningu til efri deildar samveldisþingsins í Washington. Var sú barátta bæði löng og hörð og er talið, að Douglas hafi varið 50000 dollara til hennar. Engu að síður hafði Lincoln miklu meiri byr hjá kjósendunum. En sakir öfugs kosn- íngafyrirkomulags varð þó Douglas hlutskarpari við kosn- ingarnar. En þó Lincoln biði að þessu sinni lægra hlut, er þó kosningabarátta þessi afarmerkileg, því að bæði markar hún nýja stefnu í þrælamálinu og gerði Lincoln í augum mikils hluta þjóðarinnar að sjálfsögðum leiðtoga hennar i því máli, eins og síðar varð raun á. Þegar í fyrstu ræðunni, sem hann hélt í Springfield 16. júní 1858, gerði hann skorinort og einarðlega grein fyrir horfum málsins með svofeldum orðum: »Hús það, sem er sjálfu sér sundurþykt, fær ekki staðist. Eg ætla að land þetta geti ekki að staðaldri verið að hálfu leyti þrælaland og að hálfu leyti frjálst. Eg geri ekki ráð fyrir, að bandalagið rofni. Eg geri ekki ráð fyrir, að húsið hrynji; en eg vonast eftir, að það hætti að vera sjálfu sér sundurþykt.« Hann vildi láta þrælahald í þrælaríkj- unum óátalið, en að eins hepta frekari útbreiðslu þess, og gerði ráð fyrir að með því móti mundi það hverfa af sjálfu sér með tímanum. Lincoln bar ræðu þessa undir ýmsa málsmetandi vini sína og flokksbræður áður en hann flutti hana. Voru þeir því nær allir á þeirri skoðun, að hún mundi verða flokkn- um og sjálfum honum til mesta ógagns. En hann kvaðst hafa íhugað málið vandlega og komist að þeirri niðurstöðu, að nú væri kominn tími til að leiða sannleikann afdrátt-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.