Skírnir - 01.08.1909, Side 47
Abraham Lincoln.
23^
mönnum Xot'ðurríkjanna og meðal þeirra voru 4 keppi-
nautar hans um forsetaembættið. Munu þeir hafa gert
sér von um að ráða mestu, þótt Lincoln bæri forsetanafnið.
En þeim varð ekki að því, enda voru þeir lítt samrýndir
og einatt hver höndin uppi á móti annari. Lincoln tók
að vísu ráðum þeirra með þökkum, en geymdi sjálfum
sér úrskurð allra mikilvægra mála. Gagnvart þinginu
beitti hann jafnvel stundum synjunarrétti sínum í mestu
stórmálum. Kom það ekki til af ráðríki, heldur af þvír
hve ábyrgðartilfinning hans var rík. Mæltust stjórnarað-
gerðir hans stundum misjafnt fyrir í svipinn, eins og
gengur, en eftir á könnuðust menn einatt við, að þær
hefði verið réttar og heppilegar. Það var t. a. m. sátt-
fýsi og réttsýni hans ekki sízt að þakka, að nokkur ríki,
sem voru hvarflandi í ráði sínu, hvorn fiokkinn þau ættu
að fylla, hölluðust þó loks að Norðurríkjunum.
Lincoln var sjálfur andvígur þrælahaldi, en gætti þó
lengi framan af mestu varfærnií því máli, til þess að höggva
ekki of nærri sérréttindum Suðurríkjanna, Hann hefði
talið affarasælast, að láta þrælaánauðina hverfa smámsaman,
greiða húsbændunum fullar skaðabætur fyrir lausn þræl-
anna og búa svo um þá í Norðurameríku og annarstaðar.
Mjög viðsjárvert taldi hann að veita þeim kosningarrétt
að svo komnu. En er hann sá, að hann mundi ekki fá
varnað sundrungu Bandaríkjanna, nema hann kipti burt
máttarstoð Suðurríkjanna, þrælahaldinu, þá lýsti hann þvi
yfir 22. sept. 1862, skömmu eftir sigur Norðurríkjamanna
við Anietam, að frá 1. janúar 1863 skyldi alt þrælahald
í Suðurríkjunum lögbannað. Tveim árum síðar var sams-
konar ákvæði tekið upp í stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Það er ekki hlutverk þessarar stuttu ritgerðar að
greina frá rás styrjaldarinnar og ráðstöfunum þeim, er
Lincoln gerði til að afstýra sundrungu ríkisins og binda
enda á ófriðinn. Hér skal þess að eins lauslega getið,
að hann bauð út meir en 4 miljónum hermanna þau 4
ár sem hann var forseti, kom upp miklum og öflugum
flota, reisti við lánstraust ríkisins, útvegaði því 3000 mil-