Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 54

Skírnir - 01.08.1909, Side 54
246 Betur má ef duga skal. snareygir, og svo hugprúðir, að þeir hlógu við dauðanum og hugsuðu um það eitt, að sjá sæmdinni borgið og skila niðjunum óflekkuðum orðstír ættleggsins. Þetta var arðurinn af uppeldisstefnu feðra þeirra kyn- slóð eftir kynslóð. Þeir höfðu háð örðuga lífsbaráttu við harðfengar höf- uðskepnur og menska fjendur. En þeir höfðu látið sér lærast af reynslunni að ala upp hjá sér og niðjum sinum þá eiginleika, er heillavænlegastir voru til þess, að geta staðist í baráttunni við þau öfl, er þeir áttu við að stríða. Margsinnis hafði vopnfimi, afl og áræði menskra óvina lagt frændur þeirra og ástvini að velli. Þess vegna lögðu þeir alúð á að kenna sonum sinum vopnaburð og temja þá við aflraunir og fimleika, og það því fremur sem þeir fundu það vel, að »hálfur er auður und hvötum«, að líkamshreystinni var samfara starfsþrek, framsóknarþor og viljafesti. Margt skipið höfðu Ægisdætur dregið í djúpið til sín og drekt áhöfn þess. Þess vegna gerðu þeir sundlistina að einni af aðalnámsgreinum æskulýðsins. Föng sín urðu þeir að sækja að miklu leyti í hendur Ægis eða á hans vegum. Hann lá fram undan bygðum þeirra með gull í greipum og gull að haki. En þeim þótti það ofdýr skatt- ur að gjalda honum líf hvers þess manns, er falla kunni í faðm dætra hans. Því tóku þeir það ráð, að gera Ægis- dætur að leiksystrum sona sinna frá blautu barnsbeini; þá kunni hver og einn fremur að vinda sér úr faðmlög- um þeirra, ef í alvöru sló. Marga höfðu þeir Frosti og frændur hans kvalið i kvefi og hósta eða jafnvel níst til bana. Þess vegna létu menn sonu sína herða sig gegn átökum þeirra frá barns- aldri og ólu upp hjá þeim fyrirlitningu fyrir »eldvelli, innisetum, vörmum dyngjum og dúnvöttum«, svo sem eitt af fornskáldunum kemst að orði. Kvellisýki þótti það, að fá af því lungnabólgu að steypast fram af bryggjusporði, ^þótt á vetrardegi væri, en ekki nema meðalmannsþrek

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.