Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 57

Skírnir - 01.08.1909, Side 57
Betur má ef duga skal. 24» því stigi, er glæsiþjóðirnar gömlu stóðu á í líkamsmenn- ingu, viljaþreki og vitsmunaskerpu. En hvernig er því varið um okkur Islendinga? Við áttum til þess ætt og óðal að vera atgjörvismennr enda spörum við ekki að guma af glæsimensku feðranna. En svo má gersimar velkja að göfgin hverfi. Er það ekki svo um flesta okkar, að í rauninni rekum við okkur kinnhest, er við lofum fornþjóðina? Hvað er orðið af líkamsfegurðinni, flmleikanum, harðfenginu? Hvað er orðið af hugprýðinni, er hló við dauðanum, viljaþrekinu, er aldrei lét hugast, frægðarþránni, er fyrirleit hvern þann lífsferil,. sem megnaði eigi að bregða leiðarljósi fyrirmyndarinnar fram um brautir niðjanna? Ilvað er orðið af hinni næmu sómatilfinningu, er vildi aldrei vamm sitt vita, af trygg- lyndinu og drengskapnum? Horfnir eru þessir eiginieikar að vísu ekki, en þeir eru ekki nándar nærri að sama mun almenningseign sem áður fyrr. Baráttu höfum við orðið að heyja í sífellu um allar þær aldir, er gengnar eru um garð síðan víkingatímann leið, að vísu ekki vopnabaráttu, en þó þannig vaxna bar- áttu, að allra sömu eiginleikanna var mest þörf, sem for- feður okkar í fornöld lögðu mesta rækt við. Ef við því- hefðum haldið fast við manngildishugsjónir þeirra og sniðið kostgæfilega uppeldisfarið eftir eðli baráttunnar, eins og þeir gerðu, þá hefði atgjörvi kynslóðanna átt að vera í óslitnum framvexti. En annað verður uppi á ten- ingnum ef að er gætt. Islendingar létu stiemma undan síga, að miklu leyti af sömu ástæðum og aðrar þjóðir, af trúbragða og lífsskoðunar ástæðum, og sumpart fyrir sakir óhollrar breytiþróunar í þjóðfélagsskipuninni. Og afleið- ingin varð andleg og líkamleg deyfð, sundrung og þjóð- ræknisskortur, — í stuttu máli, almenn kynspilling, er gerði þjóðina að leikfangi menskra og ómenskra óvina, að auðnæmri bráð fyrir drotnunargirni, dt epsótt og örbirgð. Það er nú liðin hálf önnur öld síðan Eggert Olafsson þuldi alvöruþrungin endurvakningarorð yfir þjóð sinni, benti henni á þróttardrepið, á magnleysishrapið undan

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.