Skírnir - 01.08.1909, Page 75
Út af æfisögu Péturs biskups.
267
•efast ekki um, að hver sá, sem með athygli les æfisöguna, muni
fá nokkurn veginn greinilega og rétta mynd af Pótri biskupi.
Ýmsir ritdómendur hafa fuudiS aS því, aS í æfisögunni væri
cfmargir útúrdúrar sögulegs efnis. Eg skal fúslega játa aS ein-
stöku atriSum hefSi mátt sleppa, en yfirleitt álít eg sögulegt efni
nauSsynlegt í slíkri æfisögn. Æfi merkismanna skilst ekki nema
skýrt sé frá tíS og tíSaranda þegar þeir lifSu. í flestum meiri-
háttar æfisögum á Englandi eru sögukaflar almenns efnis og virS-
ast þeir þó miklu fremur mega missa sig í löndum þar sem nóg
ær til af ágætum sösruritum, en ísland er sögulaust land, eins og
allir vita, aS því er snertir hinar seinni aldir. ESa eru menn
búnir aS gleyma Islendingasögum ? í þeim eru flestum óteljandi
útúrdúrar; þó þær séu margar kendar viS einstaka menn, þá er
þess þó ítarlega getiS, sem gerSist á þeirra tíma og þaS oft langt
frá aSalefni. Ætli Njála þætti ekki snubbótt, ef þar væri aS eins
æfisögubeinagrind Njáls Þorgeirssonar í Andvarast/1 og engar al-
mennar sögulegar frásagnir um samtíSarmenn?
Höf. finst kaflinn um guSfræðisbækur Póturs biskups »magur«,
en játar þó aS sig »bresti sérþekkingu« til þess að kveða upp dóm
í því efni. Eg áleit sjálfan mig heldur ekki hafa næga sérþekk-
ingu til þess að vega guðfræðisrit Póturs biskups á metaskálum.
Hinn heiðraði höf. hefir ekki athugað að 9. kaflinn er í raun róttri
ekki eftir mig, þó eg eigi samsetninguna og nokkrar athugasemdir.
Kaflinn er varla annaS en útdráttur úr umsögnum ýmsra guðfræð-
inga um rit Póturs biskups, bæði lof og last. Sóst þar glögglega,
hvað íslendingar eiga ilt meS að rata meSalhófið; það er ýmist í
ökla eða eyru, ssm ritað er um flestar bækur. Ti! frekari fullvissu
fekk eg ágætan kennimann til þess að semja grelnina um hin
kirkjulegu ritstörf dr. Péturs. í Nýju Kirkjublaði (1908. bls. 242)
var þess getið að kafii þessi mundi vera eftir síra Magnús á Gils-
bakka og virðist höf. ritdómsins trúa því; en svo er eigi, síra
Magnús hefir ekki ritað eitt einasta orð í æfisögunni; ritgjörðin er
eftir annan merkan prest, sem aldrei var handgenginn Pétri biskupi.
Því miður eru ofmargar prentvillur í bókinni, en flest eru
stafvillur, sem hægt er aS lesa f málið. ÞaS er og prentvilla á
bls. 30, að dánarár Magnúsar prests Sigurðssonar er talið 1827, á
að vera 1828; á bls. 277 er líka prentvilla Kristín Pétursdóttir,
á að vera Kirstin Pótursdóttir. Herra Jóhann Kristjánsson hefir
skýrt mór frá að Pótur Björnsson afi Péturs biskups hafi samkvæmt
kirkjubók Miklabæjar dáið 1. september 1803 (82 ára), en kona