Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 78

Skírnir - 01.08.1909, Side 78
270 Út af æfisögu Péturs biskups. 1873 og sama hefi eg heyrt menn segja, sem voru þá til heimilis- í Keykjavík. Heimild próf. Þorvalds þekki eg að vísu ekki, etv eftir almennum reglum um heimildir sagna, er af tveimur eða fleiri samtímasögnum sögn sú að öðru jöfnu talin betri og áreiðanlegri, sem greinir bæði frá stað og stund, sem talið er, að hún hafi gerst á. í bréfinu, sem eg gat um, standa ekki orðin: »og sem þúekki getur vitað nema kunni að ríða þér að fullu, okkur öllum og landi voru á komandi tíma«. Bendir það a, að hér sé ekki um neinn spádóm Hjaltalíns að ræða, heldur hafi hann viljað færa sönnur á, að nú væri svo komið, að J. S. gæti ekki lengur haldið í hemilinn á sín- um mönnum, heldur neyddist til að snúast á móti þeim. En það gerði hann einmitt á Þingvallafundinum 1873 eins og próf. Þorvald- ur tekur róttilega frim. Höf. segir enn fremur, að eg finni það helzt að ritstarfi sínu, að hann só altof nákvæmur! Það er nú svo. En eg vil biðja hann og aðra góða rnenn að gæta þess, í hverju sambandi orð þessi standa í ritdóminum. Eg held að ekki só um það að villast, að höf. á þar við svolátandi málsgrein : »Höf. er hér sem oftar í rit- inu nær því óþarflega nákvæmur í að árfæra og tilgreina ýmsa smáviðburði í lífi biskups, svo sem hver ár hatin hafi verið vara- forseti og haft ritstjórn alþingistíðindanna á hendi, hve oft hann hafi talað á sumum þingum, í hve margar nefndir hann hafi verið kosinn, hvenær hann hafi flutt þingsetningarræður og þar fram eftir götunum«. Eg átaldi að eins þess konar nákvæmni um smá- muni, er að engu leyti auðkenua manninn, og eg get enn ekki skilið, þó eg só allur að vilja gerður, hvert erindi slíkar upptaln- ingar og aðrar þvílíkar eiga í æfisögum látinna merkismanna. Eg minnist ekki heldur að hafa rekið mig á þær í ýmsum merk- um og ágætum æfisögum á útlendum tungum, sem eg hefi lesið, enda þótt þær hafi verið töluvert yfirgripsmeiri en æfisaga Péturs biskups. Annars er það fleira en smásmygli þessi sem eg fann að riti hins háttvirta höf. Þegar á 1. bls. ritdómsins vék eg að því, að sumar heimildir höf. bæri »miklu fremur að telja til dagdóma og palladóma en áreiðanlegra heimilda«. En að vera vandur að heim- ildum sínum skiftir að minni hyggju afarmiklu, þegar um sagna- ritun er að ræða. Á því veltur oft og einatt, hvort frásögnin get- ur talist áreiðanleg og sannsöguleg eða ekki. Þá fann eg og að ýmsum útúrdúrum og málalengingum höf. og ekki sízt að því, að

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.