Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 88

Skírnir - 01.08.1909, Page 88
Erlend tíðindi. U80 á 66,7 og átti eftir öð1/^; Cagní, ítali, 1900, á 86,33 og átti eftir 513/4 mílu og Peary 21. apr. 1906 á 87,6 og átti því eftir 43y2 mílu að skautinu, eða sama veg sem þvert yfir ísland. Þessir menn fóru á sleðum þegar skipin þraut, og beittu bund um fyrir, oftast 10 eða 12 fyrir hvern, eins og Grænlendingar. Wellman, Ameríkumaður, hefir og ætlað að reyna að ná skautinu á loftfari, sem stýra má, og hefir í þeirri veru farið til Spitsbergen tvö sumur undanfarið og var þar allan júlí og fram í ágúst nú í sumar að búa sig og fylla loftbelg sinn ; steig loks upp 15. ágúst og komst 8 mílur, en þá slitnaði af þeim drösull, sem loftfarið drá til að styra sér og fullur var af vistaforða.' Varð hann þá að koma niður og var hjálpað heim að skála með alt saman, en þar kviknaði í benzínvél og mistu þeir beig og alt saman úr höndum sér mannlaust út í loftið og þar sprakk það og tættist í sundur. Eftir fregnirnar um Cook og Peary lýsti Wellman því 9. sept. að hann sé hættur við norðurfarir. Það töldu menn allar líkur til, að um norðurskaut væri haf ísi þakið og rifur í og vakir, og sýndu þeir Nansen og Cagni fram á, að ísinn væri þar á reki, oftast frá austri til vesturs, og hefir þetta alt reynst nærri sanni. Þessar vakir, sund og flóar inni í ísnum, höfðu orðið erfiðust Peary og öðrum og versti þrándur sleða- ferðanna og eftir fréttina af Wellmau ráðgerði Zeppelin gamli að halda þangað r.orður næsta ár á loftfari sínu. En rétt sem menn töluðu óðast um hrakfarir Wellmans flaug sú fregn út um heiminn 1. september um kvöldið, að Cook, ame- rískur læknir, hefði komist á norðurskaut 21. apríl í fyrra (1908). Menn gláptu orðlausir hver á annan. Nálega enginn maður þekti þennan Cook. Loks grófu menn það upp, að hann hefði verið læknir með heimskautaförum bæði til suðuríshafs og norður með Peary. Þá rifjuðu menn og upp, að hann hefði farið með veiði- skipi eitthvað norður í höf fyrir 2 árum, en látið svo lítið yfir sér og svo ólfkt þeim Nansen og Peary, að þess var rétt að eins get- ið í blöðum. Nú var Cook í Leirvík á Hjaltlandi á heimleið af Grænlandi á danska Grænlandsfarinu Hans Egede. Cook hélt þaðan til Kaup- mannahafnar og fögnuðu Danir honum bæði höfðinglega og ástúð- lega. Gerði konungur honum heimboð, en landafræðisfélagið gaf honum heiðursgullpening sinn og háskólinn gerði hann heiðursdoktór, en mannfjöldinn þyrptist utanað honum, hvar sem hann fór, með óstöðvandi fagnaðarópum. Þótti Dönum það happ og heiður, að

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.