Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1909, Side 89

Skírnir - 01.08.1909, Side 89
Erlend tiðindi. 281 maður, kominn úr slíkri för, sótti þá heim fyrsta og hélt bæjar- stjórnin honum konunglega veizlu með öllu stórmenni borgarinnar, 600 manna, en tíSindamenn stórblaðanna nærri af öllum löndum sátu um hann úti og inni og símuðu heila blaðadálka út um alla veröld um hann og ferð hans, en Danir gleymdu víggirðingunum og öllu sínu stjórnarbasli yfir Cook. Fregnirnar 5. og 6. sept. sögðu nú nokkurn veginn ljóst ferða- sögu Cooks og eru aðalatriðin þessi: Hann lét út frá New York 3. júlí 1907 á skipi, sem Bradley nokkur, amerískur auðmaður, hélt til veiða norður í höf og kostaði Bradley ferð þeirra. Kom í ágúst til Norður-Grænlands til Etah, þar sem Peary hafðist oft við, nokkru fyrir norðan Yorkhöfða og bygði sér þar hús í Annatok (líka skrifað Anatok, Anotok, Annotok og fl. vega) og sat þar fram í febrúar, aflaði sér hunda, sleða, vista og atmara farar- nauðsynja. Þaðan hólt hann svo af stað 19. febr. 1908 í sólarroð meö 10 Grænlend- inga, 11 sleða og 113 hunda og héldu vestur yfir Smiths- sund og vestur yfir Elles- mereland og norður Nansens- sund milli Grantslands að austan og Heibergslands að vestan, sem Sverdrúp fann. Þar var 51 stiga kuldi á R. Við Landsend, norðurodda Heibergslands, sneru 6 Grænlend- ingar aftur með 46 hunda 18. marz. Þeir menn höfðu flutt vistir. 21. marz sneru enn 2 vistamenn aftur, en þeir þrír, Cook, Ithúkísúk og Alvíla (eða Arvíla) hóldu á ísöræfin með 3 sleða og 26 hunda. Voru þá nokkrir dauðir, en öðrum höfðu þeir slátrað til fæðis hin- um hundunum. A 85 mælistigi sáu þeir land í vestri og líkast sem væri tvær eyjar stórar. Altaf áttu þeir vökum að verjast þangað til, en úr því var ís samfeldari, en frá 88. mælist. var ís á hreyfingu austur á við og komust þeir 20. apríl á 90. mælistig og 21. á skautið sjálft og fóru þann dag og þann næsta um það Frederick A. Cook. (Eins og hann leit út, er hann kom úr norðurferðinni).

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.