Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 90

Skírnir - 01.08.1909, Page 90
■282 Erlend tíðindi. svæði alt, settu þeir niður stong í ísinn með fána Bandaríkjanna og málmhylki með stuttri ferðasögu. Þar var kuldi 31 stig á R.; sprungur voru þar í ísinn og vakir skamt burtu, en engin lifandi skepna í og ekkert að sjá annað en óendanlega ísbreiðuna ógeðslega og ömurlega. Dagur var þar þá runninn fyrir mánuði og gekk sólin hringinn í kring nokkru fyrir ofan sjóndeildarhringinn og því óslitið hádegi. Verður þar að telja stundirnar á klukkunni til þess að reikna sólarhringatöluna, því engin er nóttin. 23. hófu þeir heimför sína og ætluðu sömu leið heim, en lentu nokkru vestar og náðu ekki forðabúri sínu á Heibergslandi; hrökt- ust þar suður sundin vorið og suraarið í fyrra, liðu hungur og hörmungar og urðu lois að setjast að um haustið í Jonessundi í skúta og snara og rota dýr til matar, því öll skottæki voru löngu eydd, nema einar 3 kúiur, sem þeir geymdu sjálfum sér, ef þeir neyddist til að stytta sór aldur. 28. febr. í ár (1909) héldu þeir loks af staö úr Jonessundi. Þá sást þar fyrst glæta af sól. I miðjum apríl komust þeir austur yfir Smithssund til Grænlands og hefir Cook víst þótt sárt að dúsa þar skiplaus þangað til nú í ágúst og mega búast við að Peary yrði kominn heim á undan sér sigri hrósandi frá norðurskauti, þó hann færi ári seinna, því Peary hefir skip og á alls kostar. P e a r y . Þetta var og mjótt á mununum fyrir Cook, því þegar hann var búinn að vera 2 daga í Khöfn, og sem mest var um dýrðir, kemur sú fregn frá Nýfundnalandi kvöldið 6. september, að Peary sé þangað kominn og hafi náð norðurskauti 6. apríl í ár (1909), tæpu ári síðar en Cook. Hafði Peary lagt 15. febr. frá Norður Grænlandi norður Smiths- sund og til Cap Kolumbía norðan á Grantslatidi; þaðan 1. marz og þar þá verið auður sjór og á tveim stöðum öðrum á 87.° og 88.°, kom aftur til Cap Columbía 23. apríl og til skipsins 27. Peary lagði af stað með fjölda hunda og rnanna, en skildi þá smámsaman við sig og fór síðast til skautsins með 1 Grænlending og 1 svertingja og kvaðst ekki unna öðrum hvítum manni að stíga á skautið en sér einum, en enskum þegni lofaði hann lengst. Þykir þetta ofsadramb. En þess ber líka að gæta, að Peary hefir verið harðvítuga8tur og þrautseigastur allra norðurfara og varið til þess ævi sinni og átt að kalla heimili mörg síðustu árin þar á heim- skautshjarninu og verið konungur þar yfir selum, hjörnum, refum,

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.