Gangleri - 01.04.1870, Blaðsíða 3

Gangleri - 01.04.1870, Blaðsíða 3
3 Sökum pcningaskortsins getur nærfellt enginn böndi greitt skyldu gjöld sín í peningum, og þaö þótt efnug- ur sje kallaður, svo sýslumenn, umboðsmcnn og aðrir fjárheimtumenn fá gjöld sfn að eins í innskriptum í verzlunarreikninga sína, eður í fjenaði og ýmsum vörum, og koniast því í herkjur, að standa skil á tekjunum. Enginn getur lánað öðrum neitt, hvað sem á liggur; því hvergi eru peningar til, og leiðir þar af, að bændur hljóta opt að skerða bústofn sinn til að standa í skilum við stjcttirnar. Óskil þau, sem of víða eiga sjer stað á skuldum yíir höfuð að tala, leiða af sjer almennt tiltrfi- arleysi í viðskiptum manna á milli, sem tálma eigi all- lítið öllum fjelagsskap. í*ótt einhverjum detti f hug og vilji hafa fram eitthvert gott og þarllegt fyrirtæki, er fit- heimtir fjárframlag, verður þvf ekki framgengt. Þannig tálmar hin afarmilda peningaþröng, sem hjer á sjer stað, öllum framförum í andlegu og líkamlegu tilliti og þjóð- þrifum yfir höfuð að tala. Eptir þvf, sem nú hagar til hjá oss, mun seint verða til hlýtar bætt úr peningaskorti vorum og hans illu afleiðingum, nema banka verði komið á fót í landinu sjálfu; og fyrri mun verzlunin cigi geta orðið fullkom- lega innlend, eður komizt í hendur landsmanna. Því livernig ætíum vjer að geta rekið verzlun vora svo f Iagi fari húsa, skipa og pcninga lausir og fá hvergi lán svo rnikið, sem nemi einu eða lleiri hundruðum dala, þó tvö- falt veð og tvöföld leiga sje boðin? Lítuin yfir sögu annara landa, og munum vjer brátt komast að raun um, að engu ríki eða landi hefir heppn- ast að ráða bót á, eður koma í veg fyrir peningaþröng hjá sjer fyrri en komið var á fastan fót böukum með

x

Gangleri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.