Gangleri - 01.04.1870, Blaðsíða 33

Gangleri - 01.04.1870, Blaðsíða 33
33 1692 var vetur mjög harður og frosta mikill frá Kyndil- mcssu og j)ar <il 5 vikur voru af sumri; þá lagði nær allstaðar firði og víkur, svo fara mátti með hesta t. d. af Skarðsströnd á Skógarströnd, og Bvalfjörð Iagði allt að Hvaleyri og eigi varð skipfært milli Saurbæjar á Kjalarnesi og Innra- hólms á Akranesi. Þá mátti og ríða til Drang- cj'jar á Skagafirði og með klyfjahesta var farið af Siglunesi fyrir mynni Hjeðinsfjarðar og inn Eyjafjörð allt til Möðruvalla í Ilörgárdal; þá var líka fluttur hvalur, er fannst í fs á miðjum Ilúna- flóa, í land á hestum. Enginn fiskur var kominn syðra um páska, en nyrðra og eystra var fiski- laust um vorið ; fjell þá margt fólk úr harðrjetti, helzt eystra; líka kól þá marga menn til bana. Peningsfellir varð þá líka töluverður, því frostin voru svo mikil, að hross og sauðir helfrusu og sumstaðar láu álptir og aðrir fuglar dauðir við sjóarsíðuna. 1693: hinn 13. febrúar kom mikill eldur upp í Heklu, og hjelzt við þar til f maí; þá fjell svo mikill sandur að sumstaður tók í mjóalegg og víða varð að gefa Ije inni þótt jörð væri snjólaus; rjúpur dóu þá hrönnum, og eins silungur f vötnum. Bæir eydd- ust þá suður í Hreppum og Biskupstungum. 1694 var vetur frosta mikill, einkum þá fram á leið, urðu þá nokkrir menn úti, en marga kól til meiðsla. Hafís kom þá mikill fyrir norðan og austan, og náði allt til Vestinannaeyja; af honum stóð gras- lcysi og önnur óáran á Norður-og Austurlandi. 1695 var enn frostavetur mikill og hart vor, Um veturinn Gangleri 2, hegti. 3.

x

Gangleri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.