Gangleri - 01.04.1870, Qupperneq 11
11
þ(5 má enginn einn neitt sjerlegt afráða, og eigi nema 3
forstjórar sjeu á fundi, er þeir eiga að eiga með sjer
eigi sjaldnar en tvisvar í viku. Hver þessara forstjdra
hefir 3000 rd. í laun um árið. Fulltrúarnir velja tvo úr
sínuin ílokki til að yfirfara og endurskoða reikninga bank-
ans, en allir .leggja þeir úrskurð á þá, og skipta árs á-
góðanum út til hlutabrjefa eigendanna, þeir sjá og um,
að aðalstjórnin gefi eigi út fleiri seðla en til er ætlast.
Fyrir þessar sakir eiga þeir fundi með sjer eigi sjaldn-
ar en 4 sinnum á ári, og eiga forstjórarnir þar sæti ef
þeir viija.
Dómsmála ráðherrann á, í umboði konugs, að hafa
yfirumsjón á, að bankanum sje stjórnað samkvæmt rjett-
indaskránni, sein dagsett er 4. júlí 1818, og að ríkiðlíði
ekkcrt við gjörðir bankans.
Þegar maður vill fá lán úr bankanum, verður mað-
ur að snúa sjer til aðalstjórnarinnar eður forstjóranna,
en eigi er hún skyld að færa ástæður fyrir, þótt hún neiti
um lánið.
í rjettinda skrá fjóðbankans danska, sem gilda á í
90 ár frá dagsetningu hennar (4. júlí 1818), eru hon-
um veitt ýms rjettindi og undanþága frá almennum lög-
um, svo sem er hið helzta:
Enginn annar banki má eiga sjerjstað í Danmörku,
en auka-banka má hann hafa. Hann skal einn hafa
heimild til, að gefa út peningateikn, bankaseðla og gjald-
blöð. AJdrei skal konungur eður ríkisstjórnin hafa heim-
ild tii, hvorki á stríðs nje friðartímum, að skerða silfur
innstæðu hans nje þvinga hann til, að gefa út verðlaus
peninga teikn.
Aldrei má kyrrsetja, útpanta nje lögtaki taka muni