Gangleri - 01.04.1870, Síða 32

Gangleri - 01.04.1870, Síða 32
32 leggjast og fólkið falla fir hungri. f*á var Þing- eyjarsýsla boðin upp og vildi hana enginn. 1685 var vetur áhlaupasamur og stormamikill, og var kallaður Bmannskaðavetur“; þá var hart vor, hafís kom að Norðurlandi á einmánuði og lá fram til höfuðdags. Skip þau er fara áttu að Norðurlandi komust eigi nema á Austfirði, og máttu snóa heim aptur. Grasleysi var mikið og bjargarskortur. Þá var eldur uppi í Grímsvötnum. 1686 og 87 voru fremur hörð ár, einkum fyrir norðan, en þó varð fellir ekki til muna á fje eða mönnum. 1688 var vetur mjög harðnr með hörkum og áfreðum; varð þá peningsfellir í flestum sveitum, en harð- ast varð utn björg á Austurlandi. Peningur sá er eptir lifði varð því nær ónýtur, sökum harðinda á sumar fram og grasbrests; horfði þá til hins mesta mannfcllis. 1689 hjelt bjargarskorturinn áfram, þó vetur væri all- góður; var þá málnytu peningur mjög skorinn til matar, því eigi var annað til að lifa á, þar fiski- leysi var líka; dó þá margt fólk í flestum sveit- utn af skorti, og það meira enn næstliðið ár, því harðindin þrengdu æ því meir að sem þau gengu lengur, eptir því sem lögþingismenn úr öllum fjórð- ungum landsins vitna þá utn. 1690 gjörði aptur harðan vetur, lá þá svo mikil neyð á mönnum að fá-dæmi voru til; margir höfðu fellt og skorið fjenað sinn í flestum hjeruðum, og þar ofan á bættist fiskileysi nteira enn fyrra árið; þá gekk yfir sótt mikil og þung; hrundu menn þá c niður bæði úr henni og hungri.

x

Gangleri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.