Gangleri - 01.04.1870, Síða 39

Gangleri - 01.04.1870, Síða 39
39 hreggdrif og hreggmyndirnar á glugganum. Opt hugs- aði hún um flugurnar sfnar, óskaði eptir sól og sumri, og hjet þeim öllum lífs grið og lima; hún hjelt að þær mundu þá ekki fl/ja yfir veturinn. Einu sinni sem optar sat Úlíhildur litla úti við glugga; þá heyrði hún allt í einu eitthvert murr skammt frá sjer; það var ofurlítil fluga, sú eina er staðist hafði kulda vetrarins; hún var að sönnu mjög veikburða, og aumingja vængirnir voru svo aumkunarlega lamdir og reittir, en þó gat hún nöldrað. tílfhildi litlu varð svo hverft við, að hún rak upp háhljóð, en það var fagn- aðarhljóð. Foreldrar hennar þustu að með öndina í hálsinum, skjálfandi af ótta, og kölluðu: sHvað gengur áK? I*au hugsuðu að eitthvað gengi að barninu. Úlfhildur benti þegjandi á fluguhnoðrann, hún þorði ekki einu sinni að tala, auk heldur að kvika, svo flugan styggðist ekki burt. „Ekki annað en fluga“ sagði móðir hennar, 9það mátti ekki vera minni skrækur8! Þetta sagði hún með gremjusvip, og gekk út úr herberginu. Faðirinn gekk líka út á tánum, brosti og kinkaði kolli; honum líkaði þetta vel af barninu. Eptir þenna heillavæna atburð vann tílfhildur litla að nýju sína fornu blfðu, og þá gleði, sem að eins er lánuð saklausu barni. Flugan var nú hennar eina skemmtun; á nóttunni var hún hennar draumur, og á daginn bljes hún andhita sínum yfir aumingja krækluna; til að endurfæða lífsmegin hennar og fjör; það leið heldur ekki á löngu, að flugan væri heil sára sinna, og hún flögraði kring um iífgjafa sinn með þakklætisnöldri. Úlfhildur litla gleymdi öllu Ieikfangi sínu, og þótti það einkis virði; hún átti þó meðal annars ofurfallega brúðu,

x

Gangleri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.