Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Side 6

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Side 6
6 á þat nes, er þar var“; og handrit neðanmáls bœtir við: „skamt frá“; það er þá ekki rétt við sjálfa víkina, heldr eitthvað þar frá. í sambandi við þetta stendr það, sem Landn. segir síðar: „hann (Skallagrímr) reisti bœ hjá vík þeirri, er kista Kveldúlfs kom á land, ok kallaði at Borgu. Nú er það kunnugt, að Borg stendr ekki hjá þeirri litlu vík, sem er inn hjá Kveldúlfshöfða, heldr við botninn á þeirri stóru vík, sem gengr inn fyrir utan Digranes; báð- ar útg. segja um Skallagrím: „Hann flutti um várit eptir skipit suðr til fjarðarins, ok inn í vág þann, er nœstr var því, er Kveld- úlfr hafði til lands komit, og setti þar bœ ok kallaði at Borg“. Nú er um tvent að gjöra, annaðhvort að álíta, að kista Kveldúlfs hafi komið á land inn í Borgarvog, og koma þá sögurnar heim hvor við aðra; enn þá verðr örnefnið Kveldúlfshöfði síðari tilbún- ingr, og fer það þó ekki vel; eða þá hitt, að álykta þannig, sem fer öllu betr, nefnil., að þeir hafi flutt kistu Kveldúlfs út í Digra- nes, og jarðað hann þar, og þar sé grafreitr allra þeirra feðga, sem dóu í heiðni. ]?að er jafnvel eins og þetta liggi í anda sög- unnar síðar, eins og enn mun sagt verða; hér er heldr ekki um neitt annað verulegt nes að rœða, nema Digranes, enn nafnið hefir það ekki þá verið búið að fá, þegar ekki var lengra komið sög- unni. Hafi þetta verið þannig, þá ber þessum öllum sögum sam- an í öllu verulegu; enn einungis verðr það blátt áfram meining Landn., að Skallagrímr reisti bœinn við botninn á vík þeirri, er kista Kveldúlfs var jörðuð við, eða þar út á nesinu; nákvæmar segir hún ekki á þessum stað. Eg hefi ekki séð neina ástœðu fyrir þeirri ímyndun, að sjór hafi brotið framan af Kveldúlfshöfða; það sýnist varla heldr líklegt; því þetta er hár klettahöfði að fram- an, sem áðr er sagt; þar að auki mundi Skallagrímr varla hafa látið kistu föður sins vera á neinum þeim stað, sem líkindi voru til, að hún mundi fara f sjóinn, enda getr þetta heldr ekki orðið sam- kvæmt Landn. Digranes (nú Borgarnes) fer að byrja að skjóta sér fram rétt fyrir utan Kveldúlfshöfða; það gengr í suðr útsuðr fram og út í fjörðinn fyrir innan Borg; það er allmikið nes, hálent mjög og langt; ofan til í nesinu, suðr við sjóinn, heitir Sandrík, Egils s. bls. 78: „pat var eitt sinn um vetrinn, at knattleikr var at Borg suðr í Sandvík“. Yik þessi er með sléttum œgisandi, og slétt grund fyrir ofan, ekki mikið blásin; þar er dálítil tjörn, og þegar ís kom á hana, var hér hentugt að hafa knattleik. Sagan segir og bls. 51, að Cfranastaðir voru í Digranesi; þeir hafa því hlotið að vera á þessu svæði; enn siðr held eg að þeir hafi verið suðr í Löngubrekku, sem þar er upp frá Sandvík; þar er að vísu einhver tótt, enn hún er yngri og líkist ekki bœjarrústum; enn norðar eða vestar, nær Borgarvog, sést fyrir tóttum; ein er nokkurn veginn

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.