Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Page 78

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 02.01.1886, Page 78
78 þ>ar næst rninntist formaðurinn og þess, að félagið á hinu liðna ári hefði misst einn af sínum ágætu liðsmönnum: J. J. A. Worsaae, forstöðumann forngripasafnsins í Kaupmanna- höfn, sem árið 1884 í heiðursskyni var ritaður í félagatal, æfilangt. f>að eru allmörg ár liðin frá því, að hann útvegaði Forngripasafninu talsvert af steinvopnum að gjöf, en fyrir skemmstu ágæta eptirlík- ingu í gipsi af Valþjófsstaðarhurðinni. Eins og kunnugt er, fór varaformaður félagsins, Sigurður Vig- fússon, rannsóknarferð til Rangárvallasýslu og Skaptafellssýslu sum- arið 1883. par tók hann fyrir útgröpt á Hofinu á Seljalandi, að Bergþórshvoli, að Hofi og Snjallsteinshöfða, og fór um héruðin þar, sem helztu söguatburðir í Njálu höfðu orðið. f>ar eó rannsókn þessi var næsta umfangsmikil og eigi lokið í einni ferð, fór hann aptur rannsóknarferð um hluta af sömu héruðum sumarið 1885. í hinni fyrri ferð sinni fann hann við útgröpt að Bergþórshvoli nokkuð af hvítu efni, sem eigi þótti ólíklegt að væri efni úr fornu skyri eða mjólkurmat. Efni þetta var svo sent til Kaupmannahafnar, til ýtar- legri rannsókna á vísindalegan hátt. f>eirri rannsókn er enn eigi lokið, þar eð hún tekur mjög langan tíma, en síðar mun í Árbók félagsins verða skýrt frá árangrinuin af henni1, sem og hinum um- fangsmiklu rannsóknum varaformannsins urn þetta söguríka hérað, þegar hann er búinn að semja skýrslu sina um þær. Nú sem stendur er varaformaður félagsins, Sigurður Vigfússon, á rannsóknarferð um Húnavatns og Skagafjarðar sýslur. Árbók félagsins er nú þegar prentuð að mestu, eða 7 heilar arkir, og mun koma út í fullri stærð svo fljótt sem verða má. Félaginu hefir fyrir ötula framgöngu varaformannsins á ferð- um hans auðnazt að ná talsverðu af gripum til Forngripasafnsins. Safnið hefir við hverja ferð hans aukizt talsvert, og engum, sem sér Forngripasafnið nú og ber það saman við það, eins og það var fyrir nokkrum árum, ætti að geta dulizt, að það er þjóðarskylda hvers góðs íslendings, sem leggur nokkra rækt við fósturjörð sína, að láta safnið fá sem fyrst verða má sérhvern þann hlut, sem get- ur leitt í ljós eða aukið þekkingu á siðum og lífsháttum feðra vorra. 5>essu ætti enginn að gleyma og að ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Annars hverfa á hverju ári gripir, sem safnið ætti að geyma, annaðhvort alveg, eða þá í hendur útlendinga. 1) Ytarleg skýrsla herra V. Storck, sém veitir forstöðu efnafræðis- deildinni við hinn konunglega dýralækninga- og landbúnaðarskóla í Kaup- mannahöfn um þetta hvíta efni er nú komin hingað í janúar 1887, og verður prentuð ásamt mörgum myndum af efninu, er hann eftir efna- fræðislega og vísindalega rannsókn telur vera leifar af skyri eða slíku efni af mjólkurtagi, sem um langan tíma hafi legið í jörðu.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.