Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Side 13
13
fegðarnir á Hofi hafi ætlað það betra vini eða nánari en Kolur var;
þá munu þeir báðir hafa verið dánir fyrir nokkuru. — Hafi Sandgil
byggzt fyr en Keldur, með »hinum unaðslegu lækjum, sem þar eru«
(F. J., Safn IV. 509), þá tel ég, að Kolur í Sandgili hafi aldrei átt
yfir því landi að ráða, og líklegast, að Keldur hafi þá verið byggðar.
Að vísu er jörðin Keldur ekki talin með landnámsjörðum, og eng-
inn sést þar fyr en heiðurskarlinn Ingjaldur, í Hlíðarenda-boði 974.
Ingjaldur á Keldum var sonur Höskuldar hvíta, Ingjaldssonar sterka.
Þó ætt Ingjalds sé allmikið rakin í Njálu (kap. 116, bls. 272), sést
ekki einu sinni, hvað móðir hans hét, eða hvar foreldrar hans
bjuggu —; virðist vera hulda yfir því, eins og landnámi Keldna. —
í Tröllaskógi bjó Önundur, bróðir Egils í Sandgili, árið 986. Ekki er
ólíklegt, að þeir bræður hafi komið út frumvaxta, þó um verði ekki
sagt með vissu, eða hvor þeirra var eldri. Hallur sterki, sonur Ön-
undar, var að vígi Holta-Þóris, þ. e. Þóris Þorgeirssonar hörðska í
Holti undir Eyjafjöllum, með sonum Ketils sléttmála (á Ketilsstöð-
um?, undir Hekluhrauni). Holta-Þórir og synir hans sátu i Hlíðar-
enda-boði 974 (Njála, k. 34, 77). Þórir virðist veginn fyrir 985
(Njála, k. 58, 135). Þorgrimur mikli og Holta-Þórir voru hálfbræður
Þorgeirs gollnis, föður Njáls, sammæddir, því Þorgerður Asksdóttir
ins ómálga (Landn., sbr. Safn I., 286), eða »Áskelsdóttir hersis
ins ómálga« (Njála, k. 20, bls. 46, 459), er líklega rétt talin amma
Njáls, og Njáll og Þorgeir skorargeir Holta-Þórisson bræðrungar
(Safn I., 286; Landn. 10).
B. Fljótshlíð.
1. Baugur, fóstbróðir Hængs, »var hinn fyrsta vetur á Baugs-
stöðum, en annan með Hængi«. Egla tekur skýrt fram, að þeir hafi
komið út samflota (kap. 23, bls. 56). Þá (ljósast 879), »nam hann
Fljótshlíð alla að ráði Hængs, ofan-um Breiðabólstað til móts við
Hæng, og bjó að Hlíðarenda« (Landn. 13). Hlíðarendi er allhátt
uppi, fyrir vestan bröttu hlíðina, þar sem Fljótshlíðin beygist norður.
— Egla segir (k. 23, 56) Baug hafa numið land inn að Merkjá.
Eftir því hefir Baugur byggt innst í landi sínu, því (núverandi)
Merkjá er, — eftir því, sem Br. J. segir í Árb. 1902, bls 12 — enn
hagamark Hlíðarenda (torfunnar), en ógetið verður þá landnáms fyrir
innan hana, þ. e. Múlahverfis, allt inn að Þórólfsfelli.
2. Næst Baugi mun í Fljótshlíð hafa numið þar land Þorkell
Rauðfeldarson bundinfóti. Hann »nam land að ráði Hængs um-
hverfis Þríhyrning og bjó þar undir fjallinu«. Sonur hans var